Skip to content Skip to footer

Auka-grænmetiskassi #13

4.890 kr.

Matland og íslenskir garðyrkjubændur bjóða upp á ferskt grænmeti í einum kassa. Kassinn fer í dreifingu fimmtudaginn 27. mars. 

Auka-grænmetiskassi #13:

  • Sætar paprikur frá Flúðajörfa, 3 stk.
  • Kastanínusveppir frá Flúðasveppum, 1 pk
  • Lífrænar kartöflur frá Biobóndanum í Litlu-Hildisey – eldrauðar og Langi Seli, 1 kg
  • Tómatar frá Friðheimum, 500 g
  • Gúrka frá Gufuhlíð, 2 stk.
  • Rófa frá Þórisholti, 2 stk.

Athugið að myndin af kassanum er dæmi um samsetningu. Kassarnir eru alltaf mismunandi og fara eftir því sem er ferskast á markaðnum hverju sinni.

Afhending hjá Matlandi á Hrísateig 47, fimmtudaginn 27. mars, eftir kl. 15.00 (sjá nánari lýsingu neðar á síðunni um afhendingu). Keyrt út síðdegis og fram á kvöld til viðskiptavina sem kjósa heimsendingu. Sendum staka kassa út á land fyrir fasta upphæð, kr. 1.950, óháð magni. Upplagt að versla meira á Matlandi til þess að nýta ferðina.

Við sendum SMS til að minna viðskiptavini á að sækja sinn kassa.

1 á lager

Flokkar: , Vörunúmer:54786

Lýsing

Á Matlandi er boðið upp á grænmetiskassa frá íslenskum bændum. Úrvalið er breytilegt eftir því hvað er til hverju sinni en við auglýsum innihald í hverjum kassa með fyrirvara. Oft á tíðum eru einhverjar vörur í kassanum sem ekki er almennt að finna í stórmörkuðum, t.d. vegna lítillar framleiðslu.

Afhending

Grænmetiskassa #13 verður dreift síðla fimmtudags (eftir kl. 15.00) á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Matland sendir símaskilaboð (SMS) til kaupenda rétt áður en kassarnir eru klárir til afhendingar. Við keyrum kassana út síðdegis og um kvöldið til þeirra sem óska eftir heimsendingu. Verð fyrir heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu er 1.450 kr.

Þau sem búa utan höfuðborgarsvæðisins fá kassana senda með vöruflutningabílum Samskipa. Kassarnir eru þá til afgreiðslu á föstudögum á afgreiðslustöðum Samskipa um allt land. Verð fyrir sendingu með innanlandsdeild Samskipa er 1.950 kr.

Framleiðendurnir

Bændur sem framleiða grænmeti í kassa #13 eru Biobóndinn, Lambhagi, Friðheimar, Flúðasveppir, Flúðajörfi, Heiðmörk og Gufuhlíð. Margir þeirra eru innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.

Áskrift borgar sig

Það er ódýrara að skrá sig í áskrift. Matland dreifir grænmetiskössum á Hellu, Hvolsvelli, Borgarnesi, Selfossi, Blönduósi, Egilsstöðum, Ísafirði, Siglufirði, Sauðárkróki, Dalvík, Vík í Mýrdal, Neskaupstað, Reykjanesbæ og á fimm afhendingarstöðum Pikkoló á höfuðborgarsvæðinu, í Breiddinni og Hæðasmára í Kópavogi, á Hlemmi, við Háaleitisbraut og í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Til þess að fá kassa afhenta þar þarf að skrá sig í áskrift. Það er auðvelt að breyta henni á „þínu svæði“ inni á vefnum okkar. Áskrift þarf að skrá fyrir kl. 15 á mánudögum til að fá kassa á fimmtudegi (miðvikudögum þegar fimmtudagur er rauður dagur) og föstudegi.

Áskrifendur geta líka nálgast kassann á afgreiðslustað Matlands á Hrísateig 47 og í Brauð & co í Vesturbæ, fengið heimkeyrslu eða sent með Samskipum um allt land. Sjá nánar um áskrift hér.

Hægt er að panta grænmetiskassa til kl. 15 á mánudögum.

Varan

Auka-grænmetiskassi #13

  • Sætar paprikur frá Flúðajörfa, 3 stk.
  • Kastanínusveppir frá Flúðasveppum, 1 pk
  • Lífrænar kartöflur frá Biobóndanum í Litlu-Hildisey – eldrauðar og Langi Seli, 1 kg
  • Tómatar frá Friðheimum, 500 g
  • Gúrka frá Gufuhlíð, 2 stk.
  • Rófa frá Þórisholti, 2 stk.

Í kassanum eru sumar vörurnar í umbúðum og aðrar ekki. Matland vill lágmarka umbúðanotkun en stundum er grænmetið innpakkað til þess að varðveita gæði. Það getur komið fyrir að við tiltekt verði breytingar á innihaldi kassans, m.a. vegna þess að vara sé uppseld eða ekki til. Þá áskilur Matland sér að skipta viðkomandi vöru út fyrir aðra.

Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Sólskins, Lambhagi, Flúðasvepppir, Ártangi, Flúðajörfi, Hveratún, Gufuhlíð og Þórisholt. Nokkrir bændur úr hópnum eru innan vébanda Sölufélags garðyrkjumanna. Upplýsingar um innleggjendur hjá SFG er að finna hér.
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna eftir kl. 15 á fimmtudag: Afhendingarstaður Matlands, Hrísateig 47 í Reykjavík.

Þér gæti einnig líkað við…