Skip to content Skip to footer

Birkireykt flögusalt frá Saltverki

690 kr.

Handgert íslenskt birkireykt sjávarsalt frá Saltverki. Birkikeimur sem hentar einstaklega vel með flestu grillkjöti.

Saltið er í poka ofan í pappaöskju og vegur 125 grömm.

Frábært salt sem dregur fram ríkari bragðtóna við matargerð.

Saltið er afhent daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Afhending hjá Matlandi á Hrísateig 47. Keyrt út gegn vægu gjaldi síðdegis og fram á kvöld til viðskiptavina sem kjósa heimsendingu. Sendum út á land fyrir fasta upphæð, kr. 1.950, óháð magni. Upplagt að versla meira á Matlandi til þess að nýta ferðina.

Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:57708

Lýsing

Vestfirskt kristalsjávarsalt frá Saltverki Reykjaness eru stórar og stökkar saltflögur. Saltið er reykt undir birkispæni sem gefur einstakt bragð.


Myndir / Saltverk

Sjór úr Djúpinu er eimaður með því að leiða heitt hveravatn undir saltpönnu. Eftir verður hrein afurð, náttúrulegt og umhverfisvænt kristalflögusalt.


Björn Steinar Jónsson er frumkvöðullinn sem stofnaði Saltverk.


Framleiðslustaður saltsins frá Saltverki á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi.

Framleiðandinn

„Eitt af ósnortnustu svæðum Íslands eru Vestfirðirnir. Árið 2011 að loknu námi ýttum við úr vör þeirri hugmynd að búa til sjávarsalt á Íslandi byggt á nýtingu sjálfbærra náttúruauðlinda og hefð um saltgerð í Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. Danski konungurinn var með saltframleiðslu á 18. öld byggt á nýtingu jarðvarma. Nokkrum áratugum síðar stöðvaðist framleiðslan og þar með vinnsla á sjávarsalti við strendur Íslands. Saltverk endurvakti á árinu 2011 þessa gömlu hefð og hóf framleiðslu á sjávarsalti að nýju. Með ástríðu fyrir sjálfbærum, handunnum matvælum af hæsta gæðaflokki hefur Saltverk salt ferðast víða síðan. Margir af bestu veitingastöðum í heimi nota Saltverk salt í eldhúsum sínum ásamt fjölmörgum heimilum á Íslandi, í Skandinavíu og Ameríku,“ segir Björn Steinar Jónsson, stofnandi Saltverks.

Varan

Innihald: Sjávarsalt, birkireykt
Upprunaland:
Ísland
Pökkun og dreifing: Saltverk í Kópavogi. Dreifing: Matland. Dreifing utan höfuðborgarsvæðisins er á vegum Samskipa.
Framleiðendur: Saltverk
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna: Afhendingarstaður Matlands, Hrísateig 47 í Reykjavík.

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard