Lýsing
Fyrsta flokks ungnautakjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.
Ungnautagúllas. 3×500 g = 1,5 kg. Kílóverð: 3.990 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.
Frystivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu ungnautakjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus holdagrip frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötgæðin eru rómuð og kjötnýting mjög góð.

Angus með yfirburði
Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.

Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af ungnautagúllasi:
Orka: 417 kJ, 100 kcal.
Próten: 21,5 g
Fita: 1,4 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 0,5 g og ómettaðar 0,5
Kólestról: 57 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Ungnautakjöt – Gúllas.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.