Lýsing
Bjúgun frá Hellu eru afgreidd daginn eftir kaup. Þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 eða færð þau heimsend. Sendum um allt land með vöruflutningum Samskipa.
2 pakkar af hrossabjúgum. Í hverjum pakka eru 1 stk. af hrossabjúga, þyngd 1 kg. Heildarþyngd 2 kg.
Frystivara.
Eldunarleiðbeiningar
Bjúgun þarf að sjóða. Ef búið er að þýða bjúgun (sem við mælum með) þá þurfa þau 35 mínútna suðu. Ef bjúgun fara frosin ofan í pottinn þá þurfa þau að sjóða í 45 mínútur. Hrossabjúgun eru götuð sem kemur í veg fyrir að þau aflagist við suðuna. Látið suðuna koma rólega upp og sjóðið við lágan hita – ekki láta bullsjóða.
Hrossakjöt úr Rangárþingi
Hráefnið í bjúgunum kemur frá nokkrum hrossabændum í Rangárþingi. Sláturhúsið á Hellu sér um slátrun en kjötmeistararnir í Villt & alið verkja kjötið og búa til bjúgun samkvæmt eigin uppskrift.
Framleiðendurnir
Guðmar Jón Tómasson og Haraldur Gunnar Helgason reka saman kjötvinnsluna Villt og alið á Hellu. Þeir hafa getið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð og mikil gæði. Samhliða vinnslunni reka þeir félagar litla kjötbúð þar sem viðskiptavinir geta fengið fjölbreytt úrval af kjöti og vinnsluvörum. Villt og alið hefur unnið mikið fyrir bændur á Suðurlandi síðustu ár og líka þjónustað hreindýraveiðimenn.
Félagarnir Haraldur og Guðmar í vinnslunni hjá Villt og alið. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Villt og alið er til húsa á Þingskálum 4 á Hellu – steinsnar frá þjóðveginum. Búðin er hægra megin á myndinni en þar má kaupa ljúffengt kjöt allan ársins hring ásamt kryddum o.fl.
Innihald:
Hrossakjöt
Salt
Rotvarnarefni
Nitrit-salt
Hráefni: Hrossakjöt
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is