Ferskar T-beinssteikur úr uxakjöti frá Reykjahlíð

Price range: 5.654 kr. through 7.478 kr.

T-beinssteik úr uxakjöti frá Reykjahlíð á Skeiðum. 50 mm þykkar sneiðar. Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið.

Kílóverð: 8.290 kr.

Kælivara. Best fyrir 9. okt. Veldu þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 5.654 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir og Búkostakjötið

Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line í Reykjahlíð á Skeiðum búa með kýr og ala uxa í sláturstærð. Þau hafa um nokkur skeið selt kjöt beint frá býli undir heitinu „Búkostakjöt“.
Uxakjöt er af ungnautum sem eru gelt um 6 mánaða aldur. Kjötið þykir mjög meyrt og vel fitusprengt þar sem vaxtarhraði er hægari en í hefðbundnu nautaeldi. Uxarnir eru nokkuð spakir og eru eins mikið utandyra og mögulegt er.

Gripirnir í Reykjahlíð fá einungis heimaræktað hey og bygg ásamt óerfðabreyttu kjarnfóðri án pálmafitu. Allt heimaræktað fóður er framleitt án eitur-og varnarefna.


Bændurnir Ingvar Hersir Sveinsson og Melissa Line eru nýkomin inn í búreksturinn í Reykjahlíð. Foreldrar Ingvars Hersis eru þau Katrín H. Andrésdóttir dýralæknir og Sveinn Ingvarsson líffræðingur sem hafa búið á jörðinni um árabil. Saman reka þau einkahlutafélagið Búkosti sem heldur utan um búreksturinn í Reykjahlíð.        Myndir / Reykjahlíð


Nautgripirnir í Reykjahlíð hafa það gott yfir sumartímann. Uxarnir eru rólegir og spakir. 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af nautahryggvöðva:
Orka: 739 kJ, 177 kcal.
Próten: 21,5 g
Fita: 10,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4,2 g og ómettaðar 5,2
Kólestról: 66 mg
Kolvetni: 0

Hvernig er best að elda T-beinssteik?

Það eru ýmsar aðferðir við að elda stóra T-beinssteik. Hægt er að steikja á pönnu, elda í ofni eða grilla. Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka steikina út úr kæli a.m.k. hálftíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Ef pönnusteikt þá er gott að hita pönnuna upp á meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð, um 7-8 mín. á annarri hliðinni og 4-5 mín. á hinni hliðinni fyrir medium-rare. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Fyrir mjög þykkar steikur er ráðlegt að klára eldunina í ofni. Hvílið steikina í a.m.k. 6-8 mínútur eftir eldun og skerið síðan af beininu og í sneiðar.

Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.

Kjarnhiti uxakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Reykjahlíð er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Uxakjöt – T-beinssteik.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Reykjahlíð á Skeiðum.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

T-beinssteik, þyngdir

682 g, 692 g, 770 g, 832 g, 866 g, 884 g, 902 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskar T-beinssteikur úr uxakjöti frá Reykjahlíð”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard