Lýsing
Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.
T-bonesteik. Kílóverð: 8.790 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.
Kælivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðu Aberdeen Angus-nauti frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.
Gripurinn var látinn hanga í 18 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.
Angus er kjötframleiðslukyn
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Hvernig er best að elda T-beinssteik?
Það eru ýmsar aðferðir við að elda stóra T-beinssteik. Hægt er að steikja á pönnu, elda í ofni eða grilla. Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka steikina út úr kæli a.m.k. hálftíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Ef pönnusteikt þá er gott að hita pönnuna upp á meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð, um 7-8 mín. á annarri hliðinni og 4-5 mín. á hinni hliðinni fyrir medium-rare. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Fyrir mjög þykkar steikur er ráðlegt að klára eldunina í ofni. Hvílið steikina í a.m.k. 6-8 mínútur eftir eldun og skerið síðan af beininu og í sneiðar.
Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: T-bone steik af 100% angusungnauti, flokkun UNO 2+
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.