Lýsing
Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.
Pichanasteik. Kílóverð: 6.390 kr. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.
Frystivara.
Hreinræktaður Aberdeen Angus
Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus kúm frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.
Gripirnir voru látnir hanga í 16 daga til meyrnunar áður en þeir voru unnir í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.
Angus með yfirburði
Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.
Hvernig er best að elda Pichanasteik?
Matland mælir með að grilla þessa þjóðarsteik Brasílíumanna á snarpheitu kolagrilli. Það er smekksatriði hvað fólk vill hafa fituröndina þykka en það má alveg þynna hana niður í 1 cm ef fólk vill.
Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka steikina út úr kæli a.m.k. hálftíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Grillið fituröndina fyrst í stutta stund en setjið svo á óbeinan hita út í jaðrana á grillinu (með fituna sem lengst frá eldinum til að forða íkveikju). Þar sem fitulagið er eldfimt þarf að hafa augun á grillinu. Hafið kjötið í jöðrunum í nokkrar mínútur og snúið. Klárið steikina svo inni á grillinu í lokin. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Hvílið steikina í 5-7 mínútur eftir eldun áður en hún er borin fram. Skerið í t.d. 1-2 cm sneiðar og hafið fituröndina efst. Brasilíumenn eru frægir fyrir að þræða steikina í skeifu á prjóna og grilla þannig. Endilega prófið það!
Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Pichana af anguskúm.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.