Geitahryggur frá Snorrastöðum

Price range: 6.380 kr. through 8.781 kr.

Geitahryggur frá bænum Snorrastöðum í Borgarbyggð. Geitur og kið ganga úti við fjölbreytta beit, m.a. á túnum og í birkiskógi. Einstakt tækifæri að prófa geitakjöt sem er sjaldséð á markaði.

Geitakjöt svipar til lambakjöts en hefur þó sitt sérstaka bragð sem mörgum líkar afar vel. Geitakjöt er matreitt með svipuðum hætti og lambakjöt. Hryggirnir eru mjög litlir í samanburði við lömb en fallþungi á kiðunum var um 9 kg. Til samanburðar eru lambaskrokkar yfirleitt á bilinu 15-17 kg. Vegna þess að hryggirnir eru fremur fitulitlir þarf að passa að ofelda þá ekki.

Kjötið er verkað í vinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Slátrað haustið 2026 á Selfossi. Frystivara.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 5.290 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Vörunúmer:70978

Lýsing

Búskapurinn

Á Snorrastöðum í Kolbeinsstaðarhreppi hinum forna á Snæfellsnesi hafa verið haldnar geitur síðan árið 2014. Þær hafa ávallt verið í uppáhaldi hjá bóndasyninum Magnúsi Kristjánssyni sem ákvað, þegar hann var í bændadeildinni á Hvanneyri, að fá sér þrjár geitur. Í dag eru geiturnar orðnar 17 talsins og sér hann um þær ásamt kærustunni sinni henni Elise Calesse. Geiturnar eru á húsi yfir vetrartímann en ganga við opið nema í verstu veðrum. Yfir sumartímann ganga þær til skiptis í beitarhaga heima við bæ og í Eldborgarhrauni í kjarri og birkiskógi.

Geitunum er beitt í samræmi við aðferðir auðgandi landbúnaðar þar sem skepnurnar eru færðar reglulega á milli beitarhólfa. Með því er leitast við að hámarka velferð dýranna og fara vel með jarðveg og plöntur. Kiðlingarnir koma í heiminn á vorin og þeir sem ekki eru settir á er slátrað að hausti. Að því leyti líkist geitabúskapurinn sauðfjárbúskap.

Bændurnir á Snorrastöðum láta slátra hjá Sláturfélagi Suðurlands en kjötið er unnið í heimavinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal í viðurkenndri kjötvinnslu.

Á Snorrastöðum er blandaður búskapur og vegur kúabúskapur þar þyngst.

Aðrar upplýsingar

Innihald: Geitakjöt, kið, hryggur.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Snorrastöðum
Framleiðandi: Grímsstaðir í Reykholtsdal
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Geitahryggur, þyngdir

1206 g, 1222 g, 1248 g, 1248 g, 1294 g, 1422 g, 1478 g, 1592 g, 1594 g, 1638 g, 1644 g, 1660 g

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard