Kombucha – Krækingifer – 500 ml

690 kr.

Kombucha – Krækingifer (krækiber og engifer). 500 ml flaska með tappa sem hægt er að loka. Lifandi og endurnærandi drykkur sem nýtur æ meiri vinsælda. Góður drykkur þegar þorstinn sækir að og hentar vel í veisluhöld í staðinn fyrir áfenga drykki.

Kombucha er bruggað úr úrvali lífrænna tea og tæru íslensku vatni, sem síðan fær að gerjast. Útkoman er ógerilsneytt kombucha sem er náttúrulega freyðandi, einstaklega frískandi og ríkt af lifandi gerlum og öðrum gagnlegum örverum. Drykkurinn er jafnframt lágur í sykri og hitaeiningum – hreint og náttúrulegt handverk í hverri flösku.

Krækiber og engifer – 1 flaska. Kælivara 0-4°C. Hver flaska er 500 ml og kostar 690 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á sjálfsafgreiðslustaði Pikkoló. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

10 á lager

Lýsing

Framleiðendurnir

Kombucha Iceland er sprottið af ástríðu hjónanna Rögnu og Manuels. Manuel ólst upp í sveit í Kúbu þar sem foreldrar hans gerjuðu hefðbundna drykki úr hráefnum úr nærumhverfinu, meðal annars hrísgrjónum og villtum plómum. Sú reynsla vakti hjá honum forvitni um hvernig þessir dularfullu drykkir urðu til.

Eftir að hann flutti til Íslands árið 2006 hóf hann doktorsnám í efnafræði. Þegar hann fór að leita sér að afslappandi áhugamáli samhliða náminu lá heimabrugg beinast við. Manuel heillaðist svo af flóknu gerjunarferlunum að hann lagði uppskriftabækurnar til hliðar og fór að þróa eigin uppskriftir. Í leit sinni að nýju hráefni rakst hann á hina aldagömlu hefð að gerja te og búa til kombucha.

Heillaður jafnt af sögunni sem vísindunum á bak við kombucha fór Manuel að drekka það til að auka orku og einbeitingu á löngum námsdögum – og það virkaði. Eftir útskrift vissi hann að þetta væri einstakur drykkur sem hann vildi deila með öðrum. Ragna, sem er menntaður mannfræðingur, lagði mikla áherslu á að brugga kombucha úr íslensku vatni og hráefnum sem eiga rætur sínar í íslenskri náttúru. Þannig varð fyrsta atvinnurekna kombucha-brugghús Íslands til.

Næringarinnihald

M.v. 100 ml:

Orka: 87 kJ, 27 kcal.
Prótein: <0,03 g
Fita: 0,1 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 0 g
Kolvetni: 4,4 g
Salt: 0,03 g

Aðrar upplýsingar

Innihald: Kombucha, gerjaður drykkur. Vatn, svart og grænt te, krækiber (2%), lífrænt engifer (1,5%), lífrænt vottaður sykur fyrir gerinn, kombuchga-kúltúr (lifandi bakteríur og ger).
Upprunaland: Ísland.
Framleiðandi: Kombucha Ísland
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kombucha – Krækingifer – 500 ml”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard