Lýsing
Framleiðandinn
Vörurnar frá Fangst eru þekktar í Skandinavíu fyrir gæði. Rætur fyrirtækisins liggja í norrænni náttúru og matarmenningu. Markmið Fangst er að bjóða upp á bragðgóðar máltíðir og snarl úr því sem náttúran hefur upp á að bjóða, hvort heldur af landi, sjó eða úr norðlægum vötnum.
Framleiðandj Fangst segir mikilvægt að líta sér nær og taka örfá skref til baka. “Borðum meira af einföldum mat sem náttúran býður upp á og minna af unnum matvælum. Fangst er afurð okkar, unnin úr fiski og skelfiski af norðurslóðum, varðveitt í dósum.”
Varan
Íslensk þorskalifur. Léttreykt, varðveitt í eigin olíu.
Einnig þekkt sem „foie gras“ hafsins. Þessi íslenska þorsklifur hefur verið reykt létt yfir beykivið og varðveitt í eigin olíu án annarra innihaldsefna að undanskildu smá salti.
Tegund (latneskt): Gadus Morhua
Svæði: Norður-Atlantshaf, FAO 27
Nettóþyngd: 120 g
Innihald:
Reykt þorskalifur (99%), salt.
Næringargildi pr. 100 g:
Orka: 2591 kJ/630 kcal
Fita: 68 g
– þar af mettaðar fitusýrur: 12 g
Kolvetni: 0 g
– þar af sykur: 0 g
Prótein: 4,4 g
Salt: 0,8 g
Geymsla:
Kælt eða við stofuhita. Í kæli eftir opnun.
Tillaga að framreiðslu:
Berið fram með góðu brauði og kreistið sítrónu yfir.
Upprunaland: Ísland
Pökkun: Skov í Danmörku
Innflutningur og dreifing: Cuisine ehf.
Söluaðili: Matland





