Skip to content Skip to footer

Lífrænar bökunarkartöflur frá Biobóndanum – Eldrauðar – 2 kg

1.900 kr.

Lífrænar bökunarkartöflur, Eldrauðar. Lífrænt ræktuðu kartöflurnar frá Litlu-Hildisey í Landeyjum hafa slegið í gegn í grænmetiskössum Matlands. Þessar kartöflur eru einfaldlega mjög góðar, fallegar og allar svo mátulegar. Nú er hægt að kaupa kartöflurnar einar og sér – og njóta þessarar einstöku gæðavöru.

2 x kg. í neti. Verð á kg. 950 kr. Samtals 1.900 kr.

Matland afhendir vörur á Hrísateig 47 í Reykjavik daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

5 á lager

Flokkar: , , Vörunúmer:71390

Lýsing

 

Framleiðendurnir

Biobóndinn ræktar einungis lífrænt grænmeti og korn. Uppskera á síðasta ári gaf af sér alls 10 yrki af lífrænum kartöflum og fjögur þeirra voru til sölu. Kartöflurnar eru flokkaðar í þrjár stærðir, allt frá smælki upp í stórar kartöflur. Bio-bóndinn útvegar Matlandi lífrænar kartöflur sem hann kallar Langa-Sela og Eldrauðar. Síðsumars 2025 komu svo matarkartöflurnar “Díva” sem hentar einkar vel í steikingu eða í ofn. “Við trúum því að við getum unnið með náttúrunni við að búa til hollan og góðan mat án þess að nota tilbúinn áburð eða eitur á plönturnar eða akrana,” segir Gunnar Bio-bóndi.


Gunnar Bjarnason úti í kartöflugarði. Mynd / TB

Varan

Lífrænt ræktaðar kartöflur. Mismunandi yrki. Bökunarkartöflur.

Upprunaland: Ísland.
Pökkun og dreifing: Biobóndinn, Litlu-HIldisey.
Framleiðendur: Gunnar Bjarnason, Litlu-Hildisey.

Þér gæti einnig líkað við…