Lýsing
Nýjar kartöflur frá Seljavöllum í Hornafirði.
2 kg af Gullauga. Kílóverð 750 kr.
Kartöflurnar frá Seljavöllum koma í 1 kg pokum. Best er að geyma þær á svölum og myrkum stað.
Bændurnir
Hjalti Egilsson á Seljavöllum í Nesjum í Hornafirði hefur getið sér gott orð fyrir kartöflurækt. Hann ræktar kartöflur á rúmum 8 hekturum lands. Hluti af görðunum er undir ábreiðum svo kartöflurnar vaxi hraðar og komi fyrr á markað. Hornafjörðurinn hefur mikla sérstöðu í íslenskri kartöflurækt þar sem bændur hafa passað upp á að vera eingöngu með eigið útsæði. Þannig hafa þeir náð að halda ýmsum kartöflusjúkdómum víðs fjarri í gegnum árin.
Hjalti Egilsson bóndi á Seljavöllum með glænýjar kartöflur. Myndir / TB
Byggingar kartöflubændanna á Seljavöllum í Nesjum.
Varan
Geymist á svölum og skuggsælum stað.
Innihald: 2 kg af nýjum kartöflum, Gullauga.
Upprunaland: Ísland
Framleiðandi: Seljavallabúið
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.