Skip to content Skip to footer

Piparrótarkrem með sólberjum

1.550 kr.

Piparrótarkrem með sólberjum frá Hr. Skov. 1 krukka inniheldur 140 g. Sólberin eru tínd í Skærbæk í Danmörku.

Bragðsterkt piparrótarkrem með sólberjum. Sólberin gefa kreminu sætt bragð og jafnframt mikla fyllingu, svo ekki sé minnst á ótrúlega flottan lit fyrir veisluborðið.

Hentar vel á smurbrauðið, með nautakjöti, tapas, samlokum, reyktum laxi og ostum. Piparrótarkremið er líka sérlega góð dressing fyrir marineraða síld. Ein leið til að nýta þetta krem er að skera síldina í hæfilega bita og blanda henni síðan út í piparrótarkremið.

Verð á krukku: 1.550 kr.

Matland afhendir vörur á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

10 á lager

Flokkar: , Vörunúmer:79242

Lýsing

Framleiðandinn

Vörurnar frá Hr. Skov eru þekktar í Skandinavíu fyrir gæði. Rætur fyrirtækisins liggja í norrænni náttúru og matarmenningu.

Varan

Piparrótarkrem með sólberjum

Nettóþyngd: 140 g

Innihald:
Majónes (repjuolía, vatn, edik, gerilsn. eggjarauður, salt SINNEPSmjöl, þykkingarefni (gúargúmmí, xantangúmmí), rotvarnarefni (kalíumsorbat)), sólber 16%, piparrót 19% (NATRÍUMDÍSÚLFÍT), sykur , kirsuber, salt, (breytt sterkja (asetýlerað distarch adipate), maltódextrín, þykkingarefni (gúargúmmí, rotvarnarefni (natríumbensóat).

Næringargildi pr. 100 g:

Orka 1930 KJ/460 kcal
Fita 31 g
– þar af mettuð fita 2,4 g
Kolvetni 23 g
– þar af sykur 20 g
Prótein 1,1 g
Salt 1,9 g

Geymsla:
Kælt eða við stofuhita. Í kæli eftir opnun.

Upprunaland: Danmörk
Pökkun: Skov í Danmörku
Innflutningur og dreifing: Cuisine ehf.
Söluaðili: Matland

Þér gæti einnig líkað við…