Skip to content Skip to footer

Skirtsteik af Suðurlandi

Price range: 991 kr. through 1.662 kr.

Skirtsteik úr ungnautum sem alin eru á Suðurlandi. Matland býður skirtsteikur sem fengnar eru úr sláturhúsunum á Selfossi og Hellu og unnar hjá Villt og alið ehf. á Hellu.

Skirtsteik er best að grilla í stutta stund eða snöggsteikja á pönnu. Munið að skera þvert á vöðvaþræðina.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum. Kílóverð er 4.590 krónur.

Kjötið er frosið.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir í afgreiðslu Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:25509

Lýsing

Skirtsteik.

Kílóverð: 4.590 kr.

Skirt-steikurnar eru frá sunnlenskum kúabúum.

Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.

Frystivara.


Á veitingastaðnum Skál! hefur skirtsteik verið á matseðlinum frá upphafi. Í þessum rétti er á bilinu 160-170 g af skirtsteik. Þunnur vöðvi sem er lungnamjúkur þegar hann er rétt eldaður.  Mynd / TB

Hvernig er best að elda skirt?

Ágætt er að miða við um 200-250 g á mann í aðalmáltíð. Matland mælir með að grilla skirt-steikina en það er líka hægt að elda hana á snarkheitri pönnu. Munið að láta hvíla eftir eldun og skerið síðan þvert á vöðvaþræðina. Flott að bera fram í þunnun sneiðum á bretti.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalti frá Saltverki.

Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið er unnið og pakkað hjá Villt og alið á Hellu.

Innihald: Ungnautakjöt – Skirtsteik.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Suðurlandi.
Framleiðandi: Villt og alið.
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi og Sláturhúsið á Hellu.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Skirt, þyngdir

216 g, 256 g, 298 g, 300 g, 302 g, 362 g

Þér gæti einnig líkað við…