Skip to content Skip to footer

Kryddsíld frá Djúpavogi

4.190 kr.

Matland býður upp á kryddsíld frá Ósnesi á Djúpavogi. Alls 1,1 kg af kryddsíld í bitum í 2,8 kg fötu.

Síldin frá Ósnesi ehf. á Djúpavogi hefur fengið góðar viðtökur neytenda á síðustu árum og vinsældir hennar eru miklar.

Kælivara. Verð kr. 4.190 kr/fatan.

Fyrsta síldarsendingin í vetur verður afhent hjá Matlandi á Hrísateig 47 miðvikudaginn 19. nóvember. Við látum vita með SMS til að minna viðskiptavini á að sækja þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum heim til viðskiptavina gegn vægu gjaldi. Sendum líka út á landsbyggðina á allar vöruafgreiðslur Samskipa fyrir 1.950 krónur.

Flokkar: , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:19986

Lýsing

Afhending mið. 19. nóvember

Framleiðandinn

Ósnes ehf. er lítið fjölskyldufyrirtæki á Djúpavogi sem stofnað var árið 1996. Ósnes hefur í gegnum tíðina verið í ýmsum verkefnum tengdum sjávarútvegi, s.s. saltfiskverkun, áframeldi á þorski, ígulkerjaveiðum og stundað síldarverkun síðasta áratuginn. Síldin er verkuð eftir gamalli fjölskylduuppskrift og einungis er verkað úr úrvals hráefni frá Loðnuvinnslunni hf. Fáskrúðsfirði.

Innihald

Vatn, síld, sykur og krydd.

Kælivara 0-4°C.

Þyngd: 2,8 kg, þar af 1,1 kg síld.

Næringargildi í 100 g:

Orka: 940 kj/223kcal
Fita: 8,6 g, þ.a. mettuð fita 2,04 g
Kolvetni: 24,5 g, þ. A. Sykur 24,5 g
Prótein: 12,1 g
Salt: 2,5 g.

Vilt þú baka eigið rúgbrauð með síldinni?

Laufey Rós deilir uppskrift að rúgbrauði með lesendum Matlands. Sjá hér.

 

Frekari upplýsingar

Þyngd2,8 kg

Þér gæti einnig líkað við…