Skip to content Skip to footer

Hrossabjúgu frá Hellu – 2 stk.

4.210 kr.

Matland býður upp á hrossabjúgu frá kjötvinnslunni Villt & alið ehf. á Hellu. Úrvalsvara sem margir þekkja.

Bjúgun eru léttreykt og þarf að sjóða í 35 mínútur á rólegri suðu.

2 pakkar, 2 bjúgu, samtals 2 kg. Kílóverð: 2.105 kr.

Frystivara

Matland sendir þér vörur gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land. Þeir sem sækja vöruna fá SMS frá Matlandi til áminningar þegar hún er klár til afhendingar.

7 á lager

Flokkur: Vörunúmer:21590

Lýsing

2 pakkar af hrossabjúgum. Í hverjum pakka eru 1 stk. af hrossabjúga, þyngd 1 kg. Heildarþyngd 2 kg.

Frystivara.

Eldunarleiðbeiningar

Bjúgun þarf að sjóða. Ef búið er að þýða bjúgun (sem við mælum með) þá þurfa þau 35 mínútna suðu. Ef bjúgun fara frosin ofan í pottinn þá þurfa þau að sjóða í 45 mínútur. Hrossabjúgun eru götuð sem kemur í veg fyrir að þau aflagist við suðuna. Látið suðuna koma rólega upp og sjóðið við lágan hita – ekki láta bullsjóða.

Hrossakjöt úr Rangárþingi

Hráefnið í bjúgunum kemur frá nokkrum hrossabændum í Rangárþingi. Sláturhúsið á Hellu sér um slátrun en kjötmeistararnir í Villt & alið verkja kjötið og búa til bjúgun samkvæmt eigin uppskrift.

Framleiðendurnir

Guðmar Jón Tómasson og Haraldur Gunnar Helgason reka saman kjötvinnsluna Villt og alið á Hellu. Þeir hafa getið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð og mikil gæði. Samhliða vinnslunni reka þeir félagar litla kjötbúð þar sem viðskiptavinir geta fengið fjölbreytt úrval af kjöti og vinnsluvörum. Villt og alið hefur unnið mikið fyrir bændur á Suðurlandi síðustu ár og líka þjónustað hreindýraveiðimenn.


Félagarnir Haraldur og Guðmar í vinnslunni hjá Villt og alið. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson


Villt og alið er til húsa á Þingskálum 4 á Hellu – steinsnar frá þjóðveginum. Búðin er hægra megin á myndinni en þar má kaupa ljúffengt kjöt allan ársins hring ásamt kryddum o.fl. 

Innihald:

Hrossakjöt
Salt
Rotvarnarefni
Nitrit-salt

Hráefni: Hrossakjöt
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is