Skip to content Skip to footer

Litlir pakkar af angushakki frá Stóra-Ármóti – 5 x 300 g

5.235 kr.

NÝTT Á MATLANDI – LITLAR PAKKNINGAR. 5 pk. x 300 g af hakki í pakka. Kjörið fyrir lítil heimili. Litlir pakkar sem passa vel í frystinn og eru fljótir að þiðna.

Hakk af Aberdeen Angus nautgripum frá Stóra-Ármóti í Flóa. Kjötið er á bilinu 8-12% feitt. Skrokkarnir fengu að hanga í 16 daga áður en þeir voru unnir. Það þýðir meyrara kjöt. Takið eftir að það er lítill vökvi sem fer úr hakkinu við steikingu – gæðavara sem unun er að nota í matreiðslu.

Alls 5 pk. x 300 g. Samtals 1,5  kg. Kílóverð: 3.490 kr. Frystivara. 

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS til að minna á þegar pantanir eru tilbúnar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

11 á lager

Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:40559

Lýsing

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus kúm frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott hakk.

Gripurnir voru látnir hanga í 16 daga til meyrnunar áður en þeir voru unnir í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Kvígur og kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Nautgripahakk, 8-12% feitt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Litlir pakkar af angushakki frá Stóra-Ármóti – 5 x 300 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…