Skip to content Skip to footer

Mergbein af Angus frá Gunnbjarnarholti

2.360 kr.2.782 kr.

Mergbein af Angus-holdablendingum frá Gunnbjarnarholti. Beinin eru söguð eftir endilöngu og er auðvelt að skafa merginn úr beininu. 

Mergbeinin er kjörið að elda á ofnplötu eða grilla. Mergurinn er síðan borðaður með skeið upp úr leggnum eða skafinn úr og notaður í matargerð. Frábær sem forréttur og jafnvel í aðalrétt.

Beinin eru frosin í poka. Þyngdir eru á bilinu 1180-1400 g. Um 3-4 stk. eru í hverjum poka. Takmarkað magn.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 1.990 krónur.

Við sendum þér steikurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:48692

Lýsing

Mergbein af Angus-blendingum frá Gunnbjarnarholti.

Mergbein. Kílóverð: 1.990 kr.

Frystivara.

Arnar Bjarni Eiríksson og Berglind Bjarnadóttir voru kornung þegar þau hófu búskap árið 1988 með um 20 kýr. Á jörð þeirra hefur verið stundaður kúabúskapur síðan 1789 af sömu fjölskyldu, forfeðrum Arnars í sjö ættliði. Uppbyggingin hefur verið mikil og nú áratugum síðar hafa þau ásamt fjölskyldu sinni byggt yfir um 500 gripi í Gunnbjarnarholti, þar af um 230 mjólkandi kýr í einu fullkomnasta fjósi landsins. Fyrir nokkru hófu þau markaðssetningu á mjólkurvörum frá Gunnbjarnarholti undir heitinu Hreppamjólk en Margrét dóttir þeirra fer fyrir þeim hluta starfseminnar á búinu.

Fjósið í Gunnbjarnarholti er engin smásmíði. /Myndir úr einkasafni.

Velferð kúnna er í fyrirrúmi í fjósinu í Gunnbjarnarholti og þess gætt að kýrnar njóti besta atlætis og aðbúnaðar sem völ er á. Í hluta byggingarinnar er mjólkurbú þar sem m.a. er framleidd neyslumjólk, skyrdrykkir, jógúrt og rjómi. Við veginn neðan við fjósið er lítil verslun með sjálfsölum þar sem hægt er að kaupa mjólkurvörur frá búinu, s.s. Hreppamjólk, skyrdrykki og ís. Kjötið frá Gunnbjarnarholti, sem fæst á Matlandi, er af holdablendingum í lítilli hjörð sem bændurnir hafa ræktað síðustu ár.

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Gunnbjarnarholti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Mergbein af angusnautum.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Gunnbjarnarholti.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Mergbein

1186 g, 1378 g, 1398 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Mergbein af Angus frá Gunnbjarnarholti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…