Lýsing
Varan
Country Ketchup – tómatsósa frá Stonewall. Glútenfrí.
Stonewall Kitchen eru hágæða amerískar sælkeravörur. Fyrirtækið var stofnað af Jim Stott og Jonathan King árið 1991. Þeir byrjuðu að selja heimagerðar sultur á bændamarkaði í Portsmouth, New Hampshire til vina og vandamanna. Strax á fyrsta degi slógu sulturnar þeirra í gegn og hjólin byrjuðu að snúast. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag selja þeir undir vörumerki sínu Stonewall Kitchen fjöldann allan af sælkeravörum sem margar hverjar hafa unnið til verðlauna í sínum flokki. Fyrirtækið varð fyrst þekkt fyrir sulturnar sínar en í dag er það ekki síður þekkt pastasósur, salsa, salatdressingar, aioli, kex og margt fleira.
Næringargildi: Sjá á krukku.
Innihald: Hreinn reyrsykur, tómatpúrra, tómatar (skornir tómatar, tómatsafi, sítrónusýra, kalsíumklóríð), rauð paprika, hvítt edik, laukur, vatn, hvítlaukur, salt, muldar rauðar piparflögur, krydd.
Upprunaland: Bandaríkin
Pökkun og dreifing: Stonewall – HB-heildverslun
Framleiðendur: Stonewall