Geitalæri frá Snorrastöðum

Price range: 4.355 kr. through 8.711 kr.

Geitalæri frá bænum Snorrastöðum í Borgarbyggð. Geitur og kið ganga úti við fjölbreytta beit, m.a. á túnum og í birkiskógi.

Geitakjöt svipar til lambakjöts en hefur þó sitt sérstaka bragð sem mörgum líkar afar vel. Geitakjöt er matreitt með svipuðum hætti og lambakjöt. Fallþungi á kiðunum var um 9 kg. Til samanburðar eru lambaskrokkar yfirleitt á bilinu 15-17 kg. Vegna þess að lærin eru fremur fitulítil þarf að passa að ofelda þau ekki og þorni á meðan eldamennsku stendur.

Kjötið er verkað í vinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Frystivara.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 4.490 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Líka hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Vörunúmer:59632

Lýsing

Búskapurinn

Á Snorrastöðum í Kolbeinsstaðarhreppi hinum forna á Snæfellsnesi hafa verið haldnar geitur síðan árið 2014. Þær hafa ávallt verið í uppáhaldi hjá bóndasyninum Magnúsi Kristjánssyni sem ákvað, þegar hann var í bændadeildinni á Hvanneyri, að fá sér þrjár geitur. Í dag eru geiturnar orðnar 17 talsins og sér hann um þær ásamt kærustunni sinni henni Elise Calesse. Geiturnar eru á húsi yfir vetrartímann en ganga við opið nema í verstu veðrum. Yfir sumartímann ganga þær til skiptis í beitarhaga heima við bæ og í Eldborgarhrauni í kjarri og birkiskógi.

Geitunum er beitt í samræmi við aðferðir auðgandi landbúnaðar þar sem skepnurnar eru færðar reglulega á milli beitarhólfa. Með því er leitast við að hámarka velferð dýranna og fara vel með jarðveg og plöntur. Kiðlingarnir koma í heiminn á vorin og þeir sem ekki eru settir á er slátrað að hausti. Að því leyti líkist geitabúskapurinn sauðfjárbúskap.

Bændurnir á Snorrastöðum láta slátra hjá Sláturfélagi Suðurlands en kjötið er unnið í heimavinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal í viðurkenndri kjötvinnslu.

Á Snorrastöðum er blandaður búskapur og vegur kúabúskapur þar þyngst.

Aðrar upplýsingar

Innihald: Geitakjöt, læri.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Snorrastöðum
Framleiðandi: Grímsstaðir í Reykholtsdal
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Geitalæri

970 g, 1220 g, 1310 g, 1444 g, 1526 g, 1538 g, 1584 g, 1630 g, 1746 g, 1840 g, 1940 g

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard