Skip to content Skip to footer

Grafinn geitavöðvi frá Snorrastöðum

478 kr.2.471 kr.

Grafinn geitavöðvi frá bænum Snorrastöðum í Borgarbyggð. Kjörinn forréttur með piparrótarsósu eða einfaldlega sem ljúffengur biti á milli mála.

Geitur og kið á Snorrastöðum ganga úti við fjölbreytta beit, m.a. á túnum og í birkiskógi. Geitakjöt svipar til lambakjöts en hefur þó sitt sérstaka bragð sem mörgum líkar afar vel.

Kjötið er verkað í vinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Frystivara.

Bitarnir eru af misjöfnum stærðum frá 24 g og upp í 124 g. Verð pr. 100 g er 1.993 kr. Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Vörunúmer:59663

Lýsing

Búskapurinn

Á Snorrastöðum í Kolbeinsstaðarhreppi hinum forna á Snæfellsnesi hafa verið haldnar geitur síðan árið 2014. Þær hafa ávallt verið í uppáhaldi hjá bóndasyninum Magnúsi Kristjánssyni sem ákvað, þegar hann var í bændadeildinni á Hvanneyri, að fá sér þrjár geitur. Í dag eru geiturnar orðnar 17 talsins og sér hann um þær ásamt kærustunni sinni henni Elise Calesse. Geiturnar eru á húsi yfir vetrartímann en ganga við opið nema í verstu veðrum. Yfir sumartímann ganga þær til skiptis í beitarhaga heima við bæ og í Eldborgarhrauni í kjarri og birkiskógi.

Geitunum er beitt í samræmi við aðferðir auðgandi landbúnaðar þar sem skepnurnar eru færðar reglulega á milli beitarhólfa. Með því er leitast við að hámarka velferð dýranna og fara vel með jarðveg og plöntur. Kiðlingarnir koma í heiminn á vorin og þeir sem ekki eru settir á er slátrað að hausti. Að því leyti líkist geitabúskapurinn sauðfjárbúskap.

Bændurnir á Snorrastöðum láta slátra hjá Sláturfélagi Suðurlands en kjötið er unnið í heimavinnslunni á Grímsstöðum í Reykholtsdal í viðurkenndri kjötvinnslu.

Á Snorrastöðum er blandaður búskapur og vegur kúabúskapur þar þyngst.

Aðrar upplýsingar

Innihald: Geitakjöt, grafinn geitavöðvi.
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Snorrastöðum
Framleiðandi: Grímsstaðir í Reykholtsdal
Sláturhús: Sláturhús SS á Selfossi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Grafinn geitavöðvi - þyngd

24 g, 40 g, 42 g, 44 g, 46 g, 46 g, 48 g, 50 g, 50 g, 52 g, 54 g, 58 g, 62 g, 70 g, 74 g, 104 g, 112 g, 122 g, 124 g

Þér gæti einnig líkað við…