Skip to content Skip to footer

Skírt smjör – Ghee

Price range: 2.250 kr. through 5.390 kr.

Íslenskt skírt smjör – Ghee. Hrein og holl fita sem gefur óviðjafnanlegt bragð í matargerðina þína. Með örlítið hnetukenndu og karamellubragði, bætir skírða smjörið hvaða rétti sem er, hvort sem þú ert að steikja, baka eða leggja lokahönd á uppáhalds uppskriftirnar þínar. Skírt smjör hefur hærra bræðslumark en hefðbundið smjör og brennur því síður á pönnunni. Frábært að nota í sois-vide eldamennsku. Það er líka upplagt að nota skírt smjör út í kaffi sem orkugjafa í stað mjólkur. Sumir nota skírt smjör sem varasalva!

Skírt smjör er í raun hrein og ómenguð mjólkurfita. Með aðferðinni er smjörið hitað hægt og rólega sem verður til þess að fjarlægja vatn, kasein, laktósa og önnur mjólkurprótein. Eftir situr rík og gullin fita. Fólk með mjólkuróþol getur í flestum tilvikum neytt smjörsins vandkvæðalaust. Skírt smjör þolir 252C° áður en það fer að brenna.

Fyrir lengri líftíma mælum við með að geyma smjörið í kæli.

Hægt að velja um þrjár stærðir af krukkum:
100 ml – 2.250 kr.
200 ml – 3.600 kr.
400 ml – 5.390 kr.

Veljið ykkar stærð og fjölda í fellivalinu hér undir.

Matland afhendir vörur á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Keyrum út til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu og sendum um allt land með Samskipum.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:81507

Lýsing

Framleiðendurnir


Magdalena og Simon eru eigendur Biohackers Corner. Þau koma frá Póllandi en hafa búið á Íslandi um árabil og starfað sem kokkar á veitingastöðum. Þau vildu gera skírt smjör aðgengilegra fyrir neytendur á Íslandi og hófu því framleiðslu. 

Varan

Skírt smjör, framleitt á Íslandi af Biohackers.

Geymsluþol: 1 ár fyrir opnun (geymið á köldum, dimmum stað). Þegar krukkan er opnuð er best að neyta innan 3 mánaða ef smjörið er geymt utan kæliskápsins.

Innihald: Íslenskt ósaltað smjör.

Næringargildi í 100 g:
Orka: 3760 kJ, 890 kkal
Fita: 99,9 g, þar af mettaðar fitusýrur 65 g
Kolvetni: 0 g
Þar af sykurtegundir: 0 g
Prótein: 0 g
Salt: 0 g

Innihald: Sjá merkingar á krukkum
Upprunaland: Ísland
Pökkun og dreifing: Biohackers Corner ehf.
Framleiðandi: Biohackers Corner ehf. Framleitt í Matarsmiðju Matís, Vínlandsleið 12, 113 Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Skírt smjör - stærðir

100 ml, 200 ml, 400 ml

Þér gæti einnig líkað við…