Skip to content Skip to footer

Lausfrystir þorsksporðar – 2 kg

5.760 kr.

Þorsksporðar (allt flakið nema hnakkinn), roðlausir og beinlausir, í 2 kg pokum. Þorskur sem veiddur er af dagróðrarbátum sem gera út frá Drangsnesi. Sporðar af millistórum og stórum þorski. Falleg flök.

1 x 2 kg pakki af lausfrystum þorsksporðum. Þú tekur úr það magn sem elda á hverju sinni og lokar svo pokanum aftur.

Frystivara. Verð 2.880 kr./kg. Pokinn kostar 5.760 kr.

Fiskurinn er afhentur hjá Matlandi á Hrísateig 47 samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum út á höfuðborgarsvæðinu og sendum með Samskip um allt land.

14 á lager

Lýsing

Vinnslan

Fiskvinnslan Drangur ehf. var stofnuð árið 2000 af útgerðarmönnum á Drangsnesi ásamt Kaldrananeshreppi, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Byggðastofnun, einstaklingum á Drangsnesi og öðrum sem létu sig málið varða. Hluthafar voru ríflega 30 í upphafi.

Fiskvinnslan Drangur ehf. er framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði sem vinnur afurðir úr bolfiski og þjónustar báta sem landa afla sínum á Drangsnesi.

Helstu afurðir fyrirtækisins eru saltaður flattur þorskur, léttsöltuð fryst þorskflök og -bitar, fersk og frosin ýsuflök, ásamt söltuðum grásleppuhrognum. Fyrirtækið er staðsett á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.

Það er stefna Fiskvinnslunnar Drangs ehf. að afurðir fyrirtækisins uppfylli ströngustu kröfur um gæði, hollustu og heilbrigði. Til þess að ná þessu markmiði er lögð áhersla á skilvirkt gæðakerfi og öfluga fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Innihaldslýsing

Roðlaus og beinlaus þorskflök án hnakkans, sporðar, í 3% íshúð.

Frystivara.

Gæti innihaldið smábein. Geymist við -18°C.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 318 kJ/76 kkal
Fita 0,6 g
-þar af mettuð 0,1 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Prótein 17,7 g
Salt 0,2 g

Aðrar upplýsingar

Innihald: Lausfrystir þorsksporðar í 3% íshúð.
Upprunaland: Ísland
Veiddur og unninn á Íslandi.
Framleiðandi: Fiskvinnslan Drangur ehf. Aðalbraut 30, 520 Drangsnesi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Þér gæti einnig líkað við…