Ferskar nautarifjasteikur af 100% Angus frá Stóra-Ármóti

Price range: 6.057 kr. through 8.494 kr.

Rifjasteikur af hreinræktuðum (100%) Angus ungnautum frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. 3-4 steikur í pakka. Hæfilega feitar og safaríkar eftir því. Bitar sem eru kjörnir í hægeldun (sjá upplýsingar um nokkrar eldunaraðferðir neðar á síðunni). Í fitunni felast gæðin!

Hver biti er á bilinu 350-490 g. Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Best fyrir 1. ágúst. Takmarkað magn. Kælivara.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum. Kílóverð er 4.290 krónur.

Við sendum þér steikurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja í sjálfsafgreiðslustöðvar Pikkoló. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 6.057 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Hvernig er best að elda nautarif?

Nautarif krefjast langrar eldunar og það er best að hafa þolinmæðina með í för þegar þau eru matreidd.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.

Fjórar aðferðir sem Matland mælir með:

  1. Sjóðið rifin í potti. Setjið bjór, vatn, grænmeti og krydd í pott ásamt rifjunum og látið malla við lágan hita í 3 klst. Skellið svo rifjunum á snarkheitt grill og penslið með bbq-sósu.
  2. Rifin sett í eldfast mót í ofn. Látið bjór í botninn ásamt grænmeti og kryddi. Hafið ofninn í 100-120°C og látið malla í a.m.k. 3 klst. Passið að bleyta jafnt og þétt og ekki láta þorna. Hækkið hitann í lokin til þess að ná upp skorpu.
  3. Reykið og eldið rifin í reykofni eða smoker. Eldið í 100-120°C hita í 3 klst. Takið rifin að því loknu og stráið púðursykri, salti og pipar á bitann. Vefjið í álpappír eða sérstakan smjörpappír og hendið aftur inn í hitann í 1 klst.
  4. Þegar Klúbbur matreiðslumeistara hélt hátíðarkvöldverð um áramót voru nautarif frá Hvammi fyrir valinu. Þá voru þau sett í saltpækil í um 15 klst. og síðan sous-viduð á 79°C í 15-20 klst. Eftir það voru rifin kæld niður, beinin tekin af og bitarnir grillaðir á háum hita og penslaðir með unagi-gljáa. Skoðið nánar upplýsingar um aðferðina og uppskriftina hér.

Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Rifin sem meðlimir í Klúbbi matreiðslumeistara elduð við hátíðarkvöldverð um áramót. Sjá lýsingu og uppskrift.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus-gripum frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.

Gripurinn hékk í 14 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktuninni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:

Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Ungnautakjöt af Angus, stuttrifjasteikur
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Rifjasteikur, þyngdir

1412 g, 1444 g, 1522 g, 1550 g, 1582 g, 1590 g, 1684 g, 1754 g, 1780 g, 1812 g, 1834 g, 1980 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskar nautarifjasteikur af 100% Angus frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard