Lýsing
Hvernig er best að elda Tomahawk?
Matland mælir með að grilla Tomahawksteikina og jafnvel klára í ofni ef bitinn er stór.
Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt frá Saltverki.
Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.
Ef ekki viðrar fyrir útigrillun á Tomahawksteikinni er gott að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr nautatólg, smjöri og olíu. Eldið síðan í ofni við 180°C þar til kjarnhiti nær 53-55°C. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.
Ef pönnusteikt eingöngu þá er gott að hita pönnuna upp í meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Hvílið steikina í 5-7 mínútur eftir eldun áður en hún er borin fram.
Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.
Búskapurinn
Í Guttormshaga er rekið kúabú með bæði íslenskar kýr og litla hjörð af Angus-kúm. Á bænum eru um 60 mjólkandi kýr og um 20 holdakýr.
Á jörðinni búa þrír ættliðir en Daníel Svanur Ólafsson og Kolbrún Hrönn Sigurþórsdóttir hafa tekið við búrekstrinum af foreldrum Daníels. Sama ættin hefur búið í Guttormshaga frá því um 1900 en fyrr á árum var þar prestsetur.

“Við gefum okkar dýrum allt það besta sem völ er á,” segir Daníel Svanur Ólafsson bóndi. Mynd / HSG

Angus-kjöt er safaríkt og afar bragðgott. Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi eftir að innflutningur fósturvísa hófst fyrir nokkrum árum. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun en gripir af íslenska kúakyninu. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktuninni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.
Kjarnhiti nautakjöts
Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°
Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0
Aðrar upplýsingar
Kjötið frá Guttormshaga er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Tomahawk af angusgripum, ungnautakjöt
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Guttormshaga
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is




Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.