Brisketborgarar – 25-30% – ungnaut frá Holti – 10 stk x 140 g

6.250 kr.

Hamborgarar af ungnautum frá Holti í Álftaveri. Brisket er notað í borgarana auk úrbeinaðra rifa. Kjötið er á bilinu 25-30% feitt – safaríkt og bragðgott! Þetta eru hamborgararnir sem veitingamenn mæla með á grillið.

Gripirnir fengu að hanga í 14 daga fyrir vinnslu. Það þýðir meyrara kjöt en líka minni rýrnun á pönnunni eða grillinu.

Hamborgararnir eru frosnir og 5 saman í pakka. Alls 2 pk. x 700 g. Samtals 10 stk x 140 g = 1,4 kg.

Kílóverð: 4.464 kr.  Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 625 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Einnig hægt að sækja á afhendingarstaði Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

70 á lager

Má bjóða þér sósu eða annað?

Verð vöru: 6.250 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Nautgripir í Álftaveri.  Mynd / TB

Aðrar upplýsingar

Frystivara.

Innihald: Brisketborgarar, 25-30% fituinnihald. Ungnautakjöt.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Holti í Skaftárhreppi
Framleiðandi: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Brisketborgarar – 25-30% – ungnaut frá Holti – 10 stk x 140 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard