Skip to content Skip to footer

Bleikjuflök frá Tungusilungi

Price range: 4.926 kr. through 5.704 kr.

Millistór frosin bleikjuflök úr landeldi Tungusilungs í Tálknafirði. Á bilinu 4-6 flök í hverjum pakka. Þiðna á skammri stundu eftir að tekin eru úr frysti. Flökin eru með roði.

Frystivara. Verð 4.630 kr./kg. Pokarnir eru á bilinu 900 g – 1200 g að þyngd. Veldu þína stærð í fellivalinu hér undir.

Við sendum fiskmetið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateigi 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:40824

Lýsing

Eldunarleiðbeiningar

Bleikjuna er upplagt að steikja á pönnu í smjöri, hita í ofni eða grilla á snarpheitu grilli. Passið bara að ofelda ekki flökin. Í hefðbundnum ofni þá hentar að hafa hitann á 180°C og elda í 12-15 mínútur með undir- og yfirhita. Ef notaður er blástur þá er nóg að hafa flökin inni í ofninum í 10-12 mínútur.

Við mælum með að fólk reikni með 250-300 g á mann.

Næringargildi í 100 g:

Orka                                760 Kj/182 Kcal
Fita                                  11,8 g
*Þar af mettuð              0,22 g
Kolvetni                          0 g
*Þar af sykurtegundir  0 g
Prótein                           19 g
Salt                                  0,1 g

Varan

Innihald: Bleikjuflök, millistór, frosin.
Frystivara -18°C

Upprunaland: Ísland
Framleiðsla og pökkun: Sjávarbúrið, Hvaleyrarbraut 2, 220 Hafnarfjörður. Netfang: sjavarburid@sjavarburid.is
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður: Matland á Hrísateigi 47 í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Þyngdir

1024 g, 1050 g, 1064 g, 1078 g, 1148 g, 1164 g, 1232 g, 1302 g

Þér gæti einnig líkað við…