Skip to content Skip to footer

Brisketborgarar frá Tjörn – 10 stk x 140 g

5.670 kr.

Hamborgarar af grasfóðruðu nautunum á Tjörn á Mýrum í Hornafirði. Brisket er notað í borgarana auk úrbeinaðra rifja. Kjötið er á bilinu 25-30% feitt – safaríkt og bragðgott! Þetta eru hamborgararnir sem veitingamenn mæla með á grillið.

Nautið var látið hanga í 14 daga áður en það var unnið. Það þýðir meyrara kjöt. Hamborgararnir eru frosnir og 5 saman í pakka.

Alls 2 pk. x 700 g. Samtals 10 stk x 140 g = 1,4 kg. Kílóverð: 4.050 kr. Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 567 krónur.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afgreiðslustað Matlands á Hrísateig 47 síðdegis daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til þess að sækja. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

15 á lager

Má bjóða þér ost, sósu eða annað?

Verð vöru: 5.670 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

10 stk. x 140 g hamborgarar úr ungnauti frá Tjörn á Mýrum í Hornafirði.

Magninnkaup: 2 pakkar x 700 g. Samtals 1,4 kg.

Kílóverð: 4.050 kr. Stykkjaverð á hverjum hamborgara er 567 krónur.

Frystivara

Bændurnir

Á bænum Tjörn á Mýrum búa bræðurnir Halldór og Agnar Ólafssynir. Þeir eru ungir að árum en hafa tekið við búskap og rekstri á Tjörn.

Nautabúskapurinn á Tjörn er lítill í sniðum en alls eru á þriðja tug nauta í eldi á bænum. Auk þess eru þeir bræður með kindur. Báðir hafa þeir atvinnu utan búsins. Halldór starfar á býlinu Flatey sem er í hópi stærstu kúabúa landsins en Agnar er vélvirki og sinnir vélaviðgerðum fyrir sveitunga sína ásamt fjölbreyttri vélaverktöku. Agnar hefur um árabil getið sér gott orð fyrir þjálfun á fjárhundum og unnið til verðlauna í smalahundakeppnum.


Halldór og Agnar á kornakri í Hornafirði.

Halldór ber ábyrgð á nautaeldinu á Tjörn en hann er mikill ræktunarmaður og hefur gríðarlegan áhuga á skepnum. Hann skírir öll nautin og þekkir ættir bæði feðra og mæðra út og inn. Það þykir sérstakt við nautin á Tjörn að þau eru mörg fallega hyrnd. Það er áhugamál Halldórs og velur hann nautkálfa meðal annars eftir því hvort foreldrarnir séu með horn. Nautkálfana fá þeir bræður nokkurra vikna gamla frá búinu í Flatey og ala þá á Tjörn í sláturstærð í um tvö ár. Nautin á Tjörn eru eingöngu grasfóðruð en kálfarnir fá mjólk fyrstu vikurnar.


Fjósið í Flatey. Nautkálfarnir á Tjörn eru ættaðir frá kúabúinu í Flatey á Mýrum þar sem Halldór starfar. Þaðan eru þeir fluttir nokkurra vikna gamlir að Tjörn þar sem þeir eru aldir í sláturstærð. Myndir / TB

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm:
Orka: 834 kJ, 199 kcal.
Próten: 19,0 g
Fita: 13,8 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,6 g og ómettaðar 6,4
Kólestról: 63 mg
Kolvetni: 0
Vatn: 65,8 g

Kjötið frá Tjörn er unnið og pakkað hjá Villt & alið á Hellu.

Innihald: Ungnautakjöt, hamborgarar úr brisketi og rifjakjöti, 25-30% fituinnihald.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tjörn á Mýrum í Hornafirði.
Framleiðandi: Villt & alið ehf. á Hellu
Sláturhús nr. A067 – Sláturhús Hellu hf.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Magn

3kg., 4kg.

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Brisketborgarar frá Tjörn – 10 stk x 140 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard