Skip to content Skip to footer

Fersk Angus-Tomahawksteik frá Hvammi

6.031 kr.8.620 kr.

Tomahawksteik af Angus-holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Skrokkurinn fékk að hanga í 14 daga sem þýðir meiri meyrni.

Þú velur þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 8.690 kr.

Kjötið er ferskt og fullmeyrnað. Takmarkað magn.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup. Ef pantað er fyrir hádegi þá afhendum við samdægurs. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:6.031 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , Vörunúmer:38878

Lýsing

Meyrt kjöt af angus-holdablendingskvígu frá Hvammi í Ölfusi. Vel fitusprengt og fallegt kjöt sem fékk að hanga í 14 daga fyrir verkun.

Tomahawk. Kílóverð: 8.690 kr.

Kælivara.

Hvernig er best að elda Tomahawk?

Matland mælir með að grilla Tomahawksteikina og jafnvel klára í ofni ef bitinn er stór.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt frá Saltverki.

Gefið ykkur góðan tíma til að afþíða kjötið í kæli ef það er frosið. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Ef ekki viðrar fyrir útigrillun á Tomahawksteikinni er gott að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr nautatólg, smjöri og olíu. Bakið síðan í ofni við 180°C þar til kjarnhiti nær 53-55°C. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.

Ef pönnusteikt eingöngu þá er gott að hita pönnuna upp í meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Hvílið steikina í 5-7 mínútur eftir eldun áður en hún er borin fram.

Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen starfar í kjötiðnaði og sér um nautaeldið.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð þróaði nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri.


Nautgripirnir í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Hvammi er unnið og pakkað af Villt og alið á Hellu.

Kælivara.

Innihald: Angus-holdablendingskvígu. Tomahawk.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Villt og alið á Hellu
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Tomahawk

694 g, 696 g, 796 g, 848 g, 876 g, 992 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fersk Angus-Tomahawksteik frá Hvammi”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…