Skip to content Skip to footer

Ferskt kálfa-Milanese frá Norðtungu

Price range: 4.724 kr. through 7.684 kr.

Ferskur hryggvöði á beini af holdakálfum frá Norðtungu I í Borgarfirði. Þetta er hið eina sanna kálfa-Milanese! Notið kjöthamar til að fletja út steikina eins og þið viljið hafa hana. Hveiti, egg og brauðraspur og þið eruð komin á vit ævintýranna. Steikið í olíu á pönnu og berið svo fram með kartöflum, súrkáli eða öðru sem hugurinn girnist.

Kjötið er af 10 mánaða gömlum eldis-holdakálfum. Meyrt og ljóst kjöt. 2-3 sneiðar í pakkanum.

Kjötið er ferskt og fullmeyrnað. Takmarkað magn. Kælivara. Best fyrir 10. apríl. 

Þú velur þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð 7.290 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup. Ef pantað er fyrir hádegi þá afhendum við samdægurs. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:4.724 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , , Merkimiðar: , Vörunúmer:80060

Lýsing

Búskapurinn

Irma Þöll Þorsteinsdóttir rekur nautgripabú í Norðtungu I í Þverárhlíð þar sem eru ríflega 90 kýr. Hún hefur um árabil selt kjöt undir vörumerkinu “Tungutugga” sem margir kannast við úr Fjarðarkaupum. Á búinu eru holdagripir í bland við íslenska kúakynið. Matland býður upp á alikálfakjöt frá Norðtungu.

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55°
Lítið miðlungs / 55-60°
Miðlungs / 60-65°
Miðlungs mikið / 65-69°
Mikið steikt / 71-75°

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Norðtungu sem er til sölu hjá Matlandi er unnið og pakkað af Villt og alið á Hellu.

Kælivara

Innihald: Alikálfakjöt, hryggvöðvi, Milanese
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Norðtungu I.
Framleiðandi: Villt og alið
Sláturhús: Sláturhúsið Hellu.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Milanese, þyngdir

648 g, 650 g, 714 g, 760 g, 868 g, 876 g, 896 g, 1048 g, 1054 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt kálfa-Milanese frá Norðtungu”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…