Skip to content Skip to footer

Ferskt ribeye af 100% Angus frá Stóra-Ármóti

3.694 kr.4.540 kr.

Ribeye af 100% hreinu Angus-ungnauti frá nautgriparæktarstöðinni á Stóra-Ármóti. Flokkunin var UN0 2+. Ferskt kjöt. Vel fitusprengt og meyrt.

Kjötið er vel hangið en það fékk 18 daga í meyrnun áður en það var unnið. Takmarkað magn.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 9.190 krónur.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Matland sendir sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 3.694 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , Merkimiðar: , , , Vörunúmer:40563

Lýsing

Hreint anguskjöt frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa.

Ribeye. Kílóverð: 9.190 kr.

Kælivara.

Hvernig er best að elda ribeye?

Ribeye-steikurnar frá Stóra-Ármóti koma í bitum. Flesta bitana er mátulegt að skera í tvær jafnar steikur. Ágætt er að miða við 200-250 g á mann í aðalmáltíð.

Matland mælir með að grilla ribeye þar til kjarnhiti nær 53-55°C. En það hversu mikið steikur eru eldaðar er smekksatriði.

Kryddið eftir smekk. Matland mælir með að nota grófmulinn pipar og flögusalt.

Ef búið er að frysta nautakjöt þá er gott að gefa sér góðan tíma í að afþíða kjötið í kæli. Mikilvægt er að taka út úr kæli a.m.k. klukkutíma áður en eldamennskan hefst og hafa kjötið við stofuhita.

Einföld aðferð við að elda ribeye í stórum bitum er að hefja steikingu á mjög heitri pönnu, loka kjötinu með því að steikja upp úr smjöri og olíu. Bakið síðan í ofni við 180°C þar til kjarnhiti nær 53-55°C. Látið kjötið hvíla við stofuhita í 10 mínútur áður en það er skorið í sneiðar.

Ef pönnusteikt þá er gott að hita pönnuna upp í meðalhita. Berið lítilsháttar olíu á steikina og saltið og piprið eftir smekk. Hækkið þá hitann á pönnunni og skellið steikinni á ásamt vænni smjörklípu eða nautatólg. Snúið steikinni þegar hún er orðin vel brúnuð. Mælt er með því að nota kjöthitamæli og hætta þegar hann sýnir 52°C fyrir medium-rare. Hvílið steikina í 5-7 mínútur eftir eldun áður en hún er borin fram.

Við grillun er fylgt sömu ráðum en mikilvægt að nota kjöthitamæli til að fylgjast með hitastiginu. Munið að steikin heldur áfram að eldast í hvíldinni og því ráðlegt að hætta grillun aðeins áður en æskilegu kjarnhitastigi er náð.

Hreinræktaður Aberdeen Angus

Matland býður til sölu kjöt úr hreinræktuðum Aberdeen Angus grip frá Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Þetta er safaríkt og afar bragðgott kjöt.

Bolinn var látinn hanga í 18 daga til meyrnunar áður en hann var unninn í kjötvinnslu Villt & alið á Hellu.

Angus er kjötframleiðslukyn

Aberdeen Angus er heimsþekkt kjötframleiðslukyn sem nú ryður sér til rúms á Íslandi. Tilgangurinn með innflutningi fósturvísa og sæðis til Íslands er að búa til nýja blendinga Angusnauta og íslenskra gripa til að efla kjötframleiðsluna. Nú þegar sést að árangur af innflutningi erfðaefnis sýnir stórfelldar framfarir í framleiðslu nautakjöts hér á landi. Gripirnir vaxa hraðar og þurfa skemmri tíma til að ná mun betri holdfyllingarflokkun. Það þýðir aukna hagkvæmni í ræktunni, t.d. betri nýtingu á fermetra í gripahúsum, minni fóðurnotkun og vinnu við hvern grip.


Angus-kýr á sumarbeit við kynbótastöðina á Stóra-Ármóti.

Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti í Flóa. Hér eru kynbótagripirnir aldir við fullkomnustu aðstæður. Myndir / TB

Kjarnhiti nautgripakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75° 

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:

Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Stóra-Ármóti er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.
Innihald: Ribeye af Angusungnauti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Stóra-Ármóti
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye

402 g, 416 g, 418 g, 418 g, 418 g, 422 g, 440 g, 444 g, 450 g, 466 g, 494 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt ribeye af 100% Angus frá Stóra-Ármóti”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2025. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard