Ferskt ribeye frá Tyrfingsstöðum

Price range: 6.470 kr. through 7.481 kr.

Ferskt ribeye af Angus holdauxum (ungnautakjöt) frá Tyrfingsstöðum í Ásahreppi. Munið að nota hitamæli og hvíla steikina vel eftir eldun.

Á Tyrfingsstöðum er stundaður auðgandi landbúnaður (e. regenerative agriculture) sem er ræktunaraðferð sem hefur meðal annars það markmið að bæta ástand landsins með tímanum og auka líffræðilegan fjölbreytileika. Gripirnir eru eingöngu gras- og heyfóðraðir.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Kjötið er ferskt og fullmeyrnað. Kælivara. Best fyrir 19. ágúst. Takmarkað magn.

Þú velur þína stærð með því að velja í fellivalsglugganum hér undir. Kílóverð er 9.190 krónur. 

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á sjálfsafgreiðslustaði Pikkoló. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru: 6.470 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Lýsing

Bændurnir

Tyrfingur Sveinsson og Hulda Brynjólfsdóttir eru bændur í Lækjartúni / Tyrfingsstöðum í Ásahreppi. Þau búa með holdakýr, sauðfé og hænur ásamt því að reka ullarvinnslu. Auk þeirra starfa dóttir þeirra; Anna Guðrún og tengdasonur Þráinn að hluta til við búið ásamt Guðlaugi, Janneke og Agnesi Fríðu sem öll stökkva til þegar aðstoðar er þörf.


Tyrfingur og Hulda leggja mikla áherslu á dýravelferð og heilbrigði og að öll dýr séu sem mest í sínum náttúrulegu aðstæðum.

Tyrfingur er meistari í vélvirkjun, en Hulda er búfræðingur og kennari. Þau stunda auðgandi landbúnað á jörð sinni, þar sem aðaláherslan er lögð á að bæta jarðveginn með aðstoð jórturdýra og til þess notast þau við beitarstýringar eftir nákvæmu skipulagi.
Þau reka fyrirtækið Sveitakarlinn sem selur vörur beint frá býli undir því merki og er neytendahópurinn stór og fer stöðugt stækkandi enda vilja neytendur fá heilnæmar vörur sem eru framleiddar við kjöraðstæður.


Við fóðrun gripanna á Tyrfingsstöðum er útivera og graseldi langmikilvægast. Þeim er ekki gefið korn eða fóðurbætir nema í undantekningartilvikum.


Þeir gripir sem nú koma til Matlands eru uxar sem voru geltir 6 mánaða gamlir af dýralækni og hafa gengið úti síðan. Myndir/Tyrfingsstaðir

Kjarnhiti nautakjöts

Lítið steikt / 52-55° Lítið miðlungs / 55-60° Miðlungs / 60-65° Miðlungs mikið / 65-69° Mikið steikt / 71-75°

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið frá Tyrfingsstöðum er er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ribeye af holdauxum, ungnautakjöt
Upprunaland: Ísland. Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið á Tyrfingsstöðum
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye, þyngdir

704 g, 706 g, 746 g, 748 g, 804 g, 814 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt ribeye frá Tyrfingsstöðum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard