Ferskt ytra-skirt af 100% Angusnauti frá Vindheimum

Price range: 2.516 kr. through 3.941 kr.

Ytra-skirt af 100% Angusnauti frá Neðri-Vindheimum í Hörgárdal í Eyjafirði. Skirtsteikin hentar vel á grillið. Eldaðu upp í þína gráðu (við mælum með 54°C) og hvíldu steikina í 10 mínútur á eftir. Skerðu svo þvert á vöðvaþræðina í þunnar sneiðar (6-10 mm). 

Gripurinn fékk að hanga í 14 daga fyrir vinnslu. Það þýðir meyrara kjöt.

Kjötið er ferskt og fullmeyrnað. Best fyrir 22. júní. Takmarkað magn.

Þú velur þá stærð það sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 5.990 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir pöntun eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Einnig hægt að fá afhent á Pikkolóstöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Við sendum þér SMS þegar pöntunin er tilbúin. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Má bjóða þér sósu?

Verð vöru:2.516 kr.
Aukahlutir:
Samtals:

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , , , Merkimiðar: , , Vörunúmer:84554

Lýsing

Bændurnir

Á Neðri-Vindheimum í Hörgárdal búa bændurnir Kristbjörg og Björn ásamt börnum sínum fjórum. Þar reka þau saman blandað bú með holdakúm, kindum og hrossum. Kýrnar eru allar hýstar yfir vetrartímann líkt og kindurnar. Við burð á vorin fara þær út með kálfa sína fram á haust. Bændurnir í Vindheimum hafa lagt mikla áherslu á að bæta kjötframleiðsluna á síðustu árum. Þau hafa markvisst byggt búskapinn upp með Angus-gripum sem gefur aukinn vaxtarhraða og meiri kjötgæði.


Holdagripir af Angus-kyni á Vindheimum í Hörgárdal.

Aðrar upplýsingar

Kælivara.

Innihald: Ytra-skirt. Kjöt af 100% Angus-nauti.
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Vindheimum
Framleiðandi: Villt og alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhús Norðlenska
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ytra-skirt, þyngdir

420 g, 484 g, 494 g, 500 g, 552 g, 658 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ferskt ytra-skirt af 100% Angusnauti frá Vindheimum”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…