Lýsing
Kartöflur frá Seljavöllum í Hornafirði.
5 kg af Helgu. Kílóverð 508 kr. Samtals 2.540 kr./pokinn
Kartöflurnar frá Seljavöllum koma í 5 kg netapokum. Best er að geyma þær á svölum og myrkum stað.
Afhending
Kartöflurnar úr Hornafirði eru sendar til Reykjavíkur einu sinni í viku og afhentar síðdegis á fimmtudögum hjá Matlandi.
Kartöfluafbrigðið Helga
Helga er stökkbreytt afbrigði af tegundunum Gullauga og Eyvindi. Helgan er hnöttótt en stundum dálítið aflöng. Hún er með rauðbleikt hýði og gul að innan. Helgan er þurrefnarík og margir telja hana bestu íslensku matarkartöfluna.
Helga er talin hafa myndast vegna stökkbreytingar á Gullauga og svipar mjög til þess nema hvað hýðið er rautt. Helga Gísladóttir húsfreyja í Unnarholtskoti í Hrunamannahreppi fann um 1930 rauðleitar kartöflur í garði þar sem hún ræktaði afbrigðin Eyvind og Gullauga. Hún tók þessar kartöflur frá og ræktaði upp af þeim nýtt afbrigði sem er nefnt eftir henni.
Bændurnir
Bændurnir Hjalti Egilsson og Birna Jensdóttir á Seljavöllum í Nesjum í Hornafirði hafa getið sér gott orð fyrir kartöflurækt. Þau eru rækta kartöflur á rúmum 8 hekturum lands. Hluti af görðunum er undir ábreiðum svo kartöflurnar vaxi hraðar og komi fyrr á markað. Hornafjörðurinn hefur mikla sérstöðu í íslenskri kartöflurækt þar sem bændur hafa passað upp á að vera eingöngu með eigið útsæði. Þannig hafa þeir náð að halda ýmsum kartöflusjúkdómum víðs fjarri í gegnum árin.
Hjalti Egilsson bóndi á Seljavöllum með glænýjar kartöflur. Myndir / TB
Byggingar kartöflubændanna á Seljavöllum í Nesjum.
Varan
Kælivara. Geymist á svölum og skuggsælum stað.
Innihald: 5 kg af nýjum kartöflum, millistórar Helgur.
Upprunaland: Ísland
Framleiðandi: Seljavallabúið
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.