Ketóhakk (20-25%) frá Holti – grasfóðrað – 5 x 500 g

8.850 kr.

Ungnautahakk frá Holti– ketóhakk – með 20-25% fitu. 5 pk x 500 g = 2,5 kg. Pakkarnir eru flatir og staflast vel í frysti. Engin íblöndunarefni. Mjög fituríkt hakk sem unun er að borða – hrein orka! Grasfóðruð naut.

Kjötið er vel hangið en það fékk 14 daga í meyrnun áður en það var unnið. Frystivara.

5 pk x 500 g = 2,5 kg. Kílóverð er 3.540 krónur. Heildarverð fyrir pakkann er 8.850 kr.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Líka hægt að fá afhent á afgreiðslustöðum Pikkoló. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

7 á lager

Lýsing

Bændurnir

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Nautgripir í Álftaveri.  Mynd / TB

Næringarinnihald

M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Próten: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Ungnautakjöt frá bænum Holti í Álftaveri. Unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Ungnautahakk, 20-25% fituinnihald
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Þyngdir í boði

356 g, 634 g, 718 g, 742 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ketóhakk (20-25%) frá Holti – grasfóðrað – 5 x 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard