Lýsing
Bændurnir
Við fáum kindahakkið frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Þar búa hjónin Viðar Guðmundsson og Barbara Guðbjartsdóttir. Þau eiga fimm börn en einungis eitt þeirra er eftir á heimilinu. Hin eldri eru ýmist alflutt eða hálfflutt í burtu og stunda nám og vinnu fjarri heimahögunum.
Bærinn Miðhús á Ströndum.
Barbara og Viðar á sólríkum degi í sveitinni. Myndir / Úr einkasafni
Þorsteinn Óli, hrúturinn Skari Kveiksson og Unnur Erna.
Fjölskyldan flutti norður á Strandir haustið 2007 úr Borgarfirðinum og tók við sauðfjárrekstri í Miðhúsum. Í dag eru 540 vetrarfóðraðar ær í Miðhúsum auk þess sem Viðar og Barbara hafa komið sér upp litu kálfaeldi. Kálfarnir eru einstaklega blíðir og spakir, fá klapp svo gott sem daglega og Barbara syngur fyrir þá reglulega. Barbara og Viðar leggja mikla rækt í að hafa kálfana spaka og rólega því það skilar sér margfalt í kjötgæðum. Kálfarnir eru eingöngu aldir á grasi og hið sama má segja um sauðféð. Þær fá þó smá fóðurbæti eftir burð og þar til þær fara út í vorið. Ánum er sýnd hlýja og fá þær klapp og söng líka líkt og nautin og eru þær margar hverjar spakar og miklir karakterar. Hestar eru í Miðhúsum, flestir í eigu Guðmundar Kristins, föður Viðars, og einnig eru á bænum nokkrir border collie smalahundar.
Næringarinnihald
M.v. 100 grömm af kindahakki:
Orka: 905 kJ, 216 kcal.
Próten: 20.6 g
Fita: 15 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 5,9 g og ómettaðar 5,8 g
Kólestról: 70 mg
Kolvetni: 0
Um vöruna
Kindahakk. Frystivara.
Upprunaland: Ísland
Pökkun: Kjötvinnsla SAH-afurða á Blönduósi.
Slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðendur: Kindakjötið kemur frá bænum Miðhúsum á Ströndum. Slátrun og vinnsla kjötsins fer fram í sláturhúsinu á Blönduósi.
Sláturhús: Sláturhús SAH á Blönduósi.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna: Matlands, Hrísateig 47 í Reykjavík.