Kombucha – 6 flöskur í kippu – blandaðar bragðtegundir

2.490 kr.

Kombucha drykkir – 6 flöskur í kippu. 5 bragðtegundir. Lifandi og endurnærandi drykkir sem njóta æ meiri vinsælda. Góður drykkur þegar þorstinn sækir að og hentar vel í veisluhöld í staðinn fyrir áfenga drykki.

Engifer x 2 flöskur
Ananas x 1 flaska
Jarðarber x 1 flaska
Næturgali x 1 flaska
Glóaldin x 1 flaska

Alls 6 flöskur í kippu. Kælivara 0-4°C. Hver flaska er 330 ml. Stykkið kostar 415 kr. Allar 6 kosta 2.490 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Líka hægt að sækja á sjálfsafgreiðslustaði Pikkoló. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

11 á lager

Lýsing

Framleiðendurnir

Kombucha Iceland er sprottið af ástríðu hjónanna Rögnu og Manuels. Manuel ólst upp í sveit í Kúbu þar sem foreldrar hans gerjuðu hefðbundna drykki úr hráefnum úr nærumhverfinu, meðal annars hrísgrjónum og villtum plómum. Sú reynsla vakti hjá honum forvitni um hvernig þessir dularfullu drykkir urðu til.

Eftir að hann flutti til Íslands árið 2006 hóf hann doktorsnám í efnafræði. Þegar hann fór að leita sér að afslappandi áhugamáli samhliða náminu lá heimabrugg beinast við. Manuel heillaðist svo af flóknu gerjunarferlunum að hann lagði uppskriftabækurnar til hliðar og fór að þróa eigin uppskriftir. Í leit sinni að nýju hráefni rakst hann á hina aldagömlu hefð að gerja te og búa til kombucha.

Heillaður jafnt af sögunni sem vísindunum á bak við kombucha fór Manuel að drekka það til að auka orku og einbeitingu á löngum námsdögum – og það virkaði. Eftir útskrift vissi hann að þetta væri einstakur drykkur sem hann vildi deila með öðrum. Ragna, sem er menntaður mannfræðingur, lagði mikla áherslu á að brugga kombucha úr íslensku vatni og hráefnum sem eiga rætur sínar í íslenskri náttúru. Þannig varð fyrsta atvinnurekna kombucha-brugghús Íslands til.

Aðrar upplýsingar

Innihald: Kombucha, gerjaður drykkur. Vatn, grænt te, lífrænt vottaður sykur fyrir gerinn, kombuchga-kúltúr (lifandi bakteríur og ger).
Upprunaland: Ísland.
Framleiðandi: Kombucha Ísland
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Kombucha – 6 flöskur í kippu – blandaðar bragðtegundir”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard