Nýjar kartöflur úr Hornafirðinum – 2 kg

1.500 kr.

Nýjar kartöflur frá Seljavöllum. TAKMARKAÐ MAGN.

2 x 1 kg af nýuppteknum kartöflum frá Seljavöllum í Hornafirði. Kg-verð 750 kr. Samtals 2 x 1 kg á 1.500 krónur. Best er að borða kartöflurnar sem fyrst því þær geymast ekki vel svona nýuppteknar.

Við afhendum kartöflurnar daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi hjá Matlandi á Hrísateig 47. ATH. kartöflurnar koma í bæinn fimmtudaginn 16. júlí og verða afhentar eftir hádegi þann dag og eins og birgðir leyfa. Þeir viðskiptavinir sem óska eftir heimsendingu fá vöruna síðdegis. Sendum með Samskipum um allt land.

10 á lager

Flokkar: , Vörunúmer:41108

Lýsing

Nýjar kartöflur frá Seljavöllum í Hornafirði.

2 kg af Premier-kartöflum. Kílóverð 750 kr.

Kartöflurnar frá Seljavöllum koma í 1 kg pokum. Best er að geyma þær á svölum og myrkum stað.

Bóndinn

Hjalti Egilsson á Seljavöllum í Nesjum í Hornafirði hefur getið sér gott orð fyrir kartöflurækt. Hann ræktar kartöflur á rúmum 8 hekturum lands. Hluti af görðunum er undir ábreiðum svo kartöflurnar vaxi hraðar og komi fyrr á markað. Hornafjörðurinn hefur mikla sérstöðu í íslenskri kartöflurækt þar sem bændur hafa passað upp á að vera eingöngu með eigið útsæði. Þannig hafa þeir náð að halda ýmsum kartöflusjúkdómum víðs fjarri í gegnum árin.


Hjalti Egilsson bóndi á Seljavöllum með glænýjar kartöflur. Myndir / TB


Byggingar kartöflubændanna á Seljavöllum í Nesjum.

Varan

Geymist á svölum og skuggsælum stað. 

Innihald: 2 kg af nýjum kartöflum, Premier.
Upprunaland: Ísland
Framleiðandi: Seljavallabúið
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

 

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nýjar kartöflur úr Hornafirðinum – 2 kg”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard