Skip to content Skip to footer

Lambalæri frá Engihlíð í Vopnafirði

Price range: 11.294 kr. through 11.673 kr.

Lambalæri frá Engihlíð í Vopnafirði. Kjöt af vænum lömbum sem fengu að hanga í 2 sólarhringa eftir slátrun í handverkssláturhúsinu á Refsstað. Kílóverð 3.790 kr.

Við sendum þér kjötið gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir SMS þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

Veldu hér undir þá þyngd sem þú óskar eftir.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:71116

Lýsing

Bændurnir

Í Engihlíð búa Gauti Halldórsson og Halldóra Andrésdóttir með fjölbreyttan búskap. Þau taka þátt í verkefninu “Loftslagsvænn landbúnaður” og hafa í tengslum við það endurheimt votlendi á 90 hektara svæði, grætt upp land og plantað um 10 þúsund trjám árlega á jörðinni. Í næsta nágrenni er sláturhúsið á Refsstað, einungis 600 metra frá bænum. Það þýðir að ekki þarf að aka með lömbin til slátrunar nema í nokkrar mínútur.

Engihlíð er nýbýli út úr jörðinni Svínabökkum, stofnað seint á sjötta áratug síðustu aldar af foreldrum núverandi ábúenda. Aðalbúgrein er mjólkurframleiðsla, um 400.000 lítrar á ári auk framleiðslu nautakjöts og dilkakjöts. Þá er lítilsháttar æðarvarp og einnig er stofnræktun á íslensku landnámshænunni, svokölluðum Andrésarstofni. Minkarækt var stór hluti rekstursins frá 1984-2017 en þá var henni hætt í kjölfar mikillar verðlækkunar á skinnum. Nytjaskógrækt hófst 2013 á 199 hekturum lands í Vatnsdalsgerði en sú jörð var keypt með allri áhöfn og framleiðslurétti árið 2005. Beitarskógur er í Engihlíð á 18 hekturum lands. (Heimild: Loftslagsvænn landbúnaður)

Varan

Frystivara.

Næringargildi í 100 g:
Orka 1520 kj / 364 kkal
Fita 34,5 g
Kolvetni 4,8 g
Prótein: 14,5 g

Innihald: Lambakjöt. Lambalæri
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Engihlíð í Vopnafirði
Framleiðandi: Engihlíð
Sláturhús: Sláturhúsið á Refsstað í Vopnafirði
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Lambalæri, þyngdir

2740 g, 2820 g, 2920 g, 2940 g, 2940 g, 2980 g, 2980 g, 2980 g, 3020 g, 3080 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Lambalæri frá Engihlíð í Vopnafirði”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…