Lýsing
Framleiðendurnir
Biobóndinn ræktar einungis lífrænt grænmeti og korn. Uppskera á síðasta ári gaf af sér alls 10 yrki af lífrænum kartöflum og fjögur þeirra voru til sölu. Kartöflurnar eru flokkaðar í þrjár stærðir, allt frá smælki upp í stórar kartöflur. Bio-bóndinn útvegar Matlandi lífrænar kartöflur sem hann kallar Langa-Sela og Eldrauðar. Síðsumars 2025 komu svo matarkartöflurnar “Díva” sem hentar einkar vel í steikingu eða í ofn. “Við trúum því að við getum unnið með náttúrunni við að búa til hollan og góðan mat án þess að nota tilbúinn áburð eða eitur á plönturnar eða akrana,” segir Gunnar Bio-bóndi.

Varan
Lífrænt ræktaðar kartöflur. Mismunandi yrki.
Upprunaland: Ísland.
Pökkun og dreifing: Biobóndinn, Litlu-Hildisey.
Framleiðendur: Gunnar Bjarnason, Litlu-Hildisey.
