Skip to content Skip to footer

Ungnautahakk (8-12%) af Angus frá Holti – 5 x 500 g

8.850 kr.

Ungnautahakk með 8-12% fitu. 5 pk x 500 g = 2,5 kg. Pakkarnir eru flatir og staflast vel í frysti. Engin íblöndunarefni – bara hreint hakk. Skrokkarnir hafa hangið í 14 daga sem gerir það að verkum að það verður minni kjötsafi á pönnunni þegar hakkið er steikt. Þú finnur muninn.

Ungnautahakk af Angus-holdablendingum frá bænum Holti í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu. Gripir sem eru eingöngu aldir á grasi (útibeit) og heyi. Unnið hjá Villt & alið á Hellu. Frystivara.

5 pk x 500 g = 2,5 kg. Kílóverð er 3.540 krónur. Heildarverð fyrir pakkann er 8.850 kr.

Við sendum þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum sms þegar vörurnar eru tilbúnar til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

20 á lager

Flokkar: , Merkimiðar: , , Vörunúmer:55109

Lýsing

Ungnautahakk. Kílóverð: 3.540 kr. Frystivara.

Búskapurinn

Í Holti í Álftaveri í Skaftárhreppi reka tvær kynslóðir blandað bú með mjólkurkýr, sauðfé og holdagripi ásamt hrossum. Ábúendur í félagsbúinu Holti eru Konný Sif Gottsveinsdóttir, Þorbergur Jónsson, Gottsveinn Eggertsson og Svana Sigurjónsdóttir.

Holdakýr og kvígur ganga úti fyrir opnu allt árið um kring og holdagripirnir eru einungis fóðraðir á grasi/heyi. Mynd / Úr einkasafni

Næringarinnihald M.v. 100 grömm af millifeitu steiktu nautakjöti:
Orka: 765 kJ, 183 kcal.
Prótein: 24,3 g
Fita: 9,5 g, þ.a. mettaðar fitusýrur 4 g og ómettaðar 4,2 g
Kólestról: 72 mg
Kolvetni: 0

Aðrar upplýsingar

Kjötið er frá bænum Holti í Álftaveri og er unnið og pakkað hjá Villt & alið ehf. á Hellu.

Innihald: Hakk með 8-12% fituinnihaldi. 5 x 500 g pakkar
Upprunaland: Ísland, slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf.
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Ribeye

500 g, 518 g, 538 g, 556 g, 558 g, 570 g, 582 g, 588 g, 614 g, 640 g, 642 g, 642 g, 644 g, 656 g, 660 g, 660 g, 664 g, 666 g, 678 g, 684 g, 684 g, 688 g, 694 g, 700 g, 702 g, 708 g, 734 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Ungnautahakk (8-12%) af Angus frá Holti – 5 x 500 g”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…