Rabarbari frá Löngumýri – 3 kg

2.640 kr.

Matland býður upp á rabarbara frá Löngumýri á Skeiðum. Þrjú kíló af þvegnum rabarabara í bitum. Pakkað í lofttæmdar umbúðir. Pantið ykkar skammt hér og tryggið ykkur rabarbara í sultugerðina.

3 kg af brytjuðum rabarbara. Verð pr. kg er 880 kr. Samtals 2.640 kr. pokinn.

Rabarbarinn er ferskur. Veldu fjölda poka sem þú vilt fá hér fyrir neðan (ath. 3 kg í pokanum).

Afhending hjá Matlandi á Hrísateig 47 föstudaginn 17. júlí eftir hádegi. Við sendum SMS þegar vörurnar þínar eru tilbúnar og hægt að sækja. Keyrt út síðdegis og fram á kvöld til viðskiptavina sem kjósa heimsendingu. Sendum út á land fyrir fasta upphæð, kr. 1.950, óháð magni.

Flokkur: Vörunúmer:40181

Lýsing

Afhending 17. júlí eftir hádegi.

Hér undir er uppskrift að rabarbarasultu frá Leiðbeiningamiðstöð heimilanna.

Rabarbarasulta

Hráefni
1 kg rabarbari
600 g strásykur
200 g púðursykur (dökkur)

Aðferð
Rabarbarinn er þveginn og þurrkaður. Brytjaður niður í frekar smáa bita og hýði sem er orðið brúnt fjarlægt.

Sett lagskipt á móti sykri í góðan pott. Suðan látin koma upp og soðið við vægan hita þangað til sultan fer að þykkna.

Ágætis viðmið er, að ef trésleif er stungið í miðjan pottinn og hún stendur kyrr, þá ætti sultan að vera fullsoðin.

Sultan sett í vel hreinsaðar krukkur, lokað strax og geymd á köldum stað.

Gott ráð ef rabarbarinn og sykurinn er sett í pott deginum áður en sultan er soðin þarf hún skemmri suðutíma.

Ef þú vilt gera rabarbaragraut þá er uppskrift hér.

Framleiðandinn

Kjartan H. Ágústsson hefur ræktað rabarbara á Löngumýri á Skeiðum í marga áratugi. Í ár er 54 árið sem hann stendur vaktina en Kjartan var 16 ára gamall þegar hann byrjaði að skera rabarbara og selja. Núna uppsker hann um 6-8 tonn af rabarbara á hverju sumri og selur mest af magninu í sultugerð.

Yrkið sem Kjartan ræktar kallast Queen Victoria, kemur upphaflega frá Bretlandi og er kennt við Victoriu, dóttur hertogans af Kent, sem síðar var krýnd drottning. Yrkið er stórvaxið með græna stöngla og gefur mikla uppskeru en þykir súrt.

„Fyrst þarf að taka hann upp og brjóta blöðkuna af og eftir að rabarbarinn kemur í hús er hællinn eða hófurinn skorinn af. Því næst er hann þveginn og stærstur hluti hans brytjaður í tveggja sentímetra bita auk þess sem ég sel lítinn hluta hans í heilum stilkum,“ sagði Kjartan í viðtali við Vilmund Hansen, blaðamann hjá Bændablaðinu, fyrir nokkrum árum.

Fyrirtæki í sultuframleiðslu kaupa stærstan hluta uppskerunnar en rabarbarinn er þó nýttur í ýmislegt annað; m.a. í líkjöragerð, karmellur og grauta. Í rabarbararæktinni hjá Kjartani er hvorki notað skordýra- né illgresiseitur.

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard