Skip to content Skip to footer

Saltað hrossakjöt frá Hellu

2.294 kr.2.446 kr.

Matland býður upp á saltað hrossakjöt frá kjötvinnslunni Villt & alið ehf. á Hellu.

1 pakki af söltuðu hrossakjöti. Oftast tveir bitar í pakka. Þyngdir á bilinu 1-1,3 kg. Veljið þá stærð sem hentar þér í fellivalinu hér undir. Kílóverð: 2.120 kr.

Kælivara.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir til Matlands á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land. Þeir sem sækja vöruna fá SMS frá Matlandi til áminningar þegar hún er klár til afhendingar.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Vörunúmer:47166

Lýsing

1 pakki af söltuðu hrossakjöti, tveir bitar. Í hverjum pakka eru á bilinu 0,9-1,3 kg.

Kælivara.

Eldunarleiðbeiningar

Sú aðferð að sjóða hrossakjöt er vanalegust. Þá er kjötið soðið á lágum hita í 1 1/2 til 2 klukkustundir. Ekki láta bullsjóða. Berið fram með soðnum kartöflum, rófum og gulrótum. Gamli góði jafningurinn er alltaf góður með söltuðu hrossakjöti.

Hrossakjöt úr Rangárþingi

Hrossakjötið kemur frá nokkrum hrossabændum í Rangárþingi. Sláturhúsið á Hellu sér um slátrun en kjötmeistararnir í Villt & alið verkja kjötið samkvæmt eigin uppskrift.

Framleiðendurnir

Guðmar Jón Tómasson og Haraldur Gunnar Helgason reka saman kjötvinnsluna Villt og alið á Hellu. Þeir hafa getið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð og mikil gæði. Samhliða vinnslunni reka þeir félagar litla kjötbúð þar sem viðskiptavinir geta fengið fjölbreytt úrval af kjöti og vinnsluvörum. Villt og alið hefur unnið mikið fyrir bændur á Suðurlandi síðustu ár og líka þjónustað hreindýraveiðimenn.


Félagarnir Haraldur og Guðmar í vinnslunni hjá Villt og alið. Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson


Villt og alið er til húsa á Þingskálum 4 á Hellu – steinsnar frá þjóðveginum. Búðin er hægra megin á myndinni en þar má kaupa ljúffengt kjöt allan ársins hring ásamt kryddum o.fl. 

Innihald:

Hrossakjöt
Salt
Rotvarnarefni
Nitrit-salt
Þráavarnarefni: E316

Hráefni: Hrossakjöt
Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Framleiðandi: Villt & alið ehf. á Hellu
Sláturhús: Sláturhúsið á Hellu
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Frekari upplýsingar

Saltað hrossakjöt

1054 g, 1066 g, 1076 g, 1082 g, 1100 g, 1154 g, 1180 g, 1206 g, 1216 g

Þér gæti einnig líkað við…