Lýsing
Eldunarleiðbeiningar
Smálúðuna er kjörið að steikja á pönnu í smjöri eða elda í ofni.
Ein aðferðin er að setja smálúðuna á snarpheita ofnplötu í ofni. Í hefðbundnum ofni þá hentar að hafa hitann á 180°C og elda í 10-12 mínútur með undir- og yfirhita. Ef notaður er blástur þá er nóg að hafa smálúðuna inni í ofninum í 9 mínútur. Látið roðið snúa upp. Gott er að kreista sítrónu yfir flakið og að sjálfsögðu að pipra og salta. Þegar búið er að elda flakið er því rennt af ofnplötunni á fat og roðið tekið af.
Við mælum með að fólk reikni með 250-300 g á mann.
Næringargildi í 100 g:
Orka 389 Kj/92 Kcal
Fita 1,6 g
*Þar af mettuð 0,25 g
Kolvetni 0 g
*Þar af sykurtegundir 0 g
Prótein 19,4 g
Salt 0,15 g
Varan
Innihald: Smálúða
Frystivara -18°C
Upprunaland: Ísland
Framleiðsla og pökkun: Sjávarbúrið, Hvaleyrarbraut 2, 220 Hafnarfjörður. Netfang: sjavarburid@sjavarburid.is
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is
Afhendingarstaður fyrir þá sem sækja vöruna eftir kl. 16 á mánudögum: Afhendingarstaður Matlands á Hrísateigi 47 í Reykjavík.