Skip to content Skip to footer

Steinbítskinnar – 1 kg

1.990 kr.

Steinbítskinnar í 1 kg pokum. Frábær vara sem við Íslendingar sendum mest til Frakklands þar sem fínustu veitingahús eru með hana á matseðlinum. Kinnarnar er ýmist hægt að steikja á pönnu, djúpsteikja, setja í súpu eða sjóða. Þéttur vöðvi sem er afar ljúfur undir tönn.

1 kg pakki af steinbítskinnum.

Frystivara. Verð aðeins 1.990 kr./kg

Fiskurinn er afhentur hjá Matlandi á Hrísateig 47 samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum út á höfuðborgarsvæðinu og sendum með Samskip um allt land.

13 á lager

Flokkur: Merkimiðar: , , Vörunúmer:75910

Lýsing

Vinnslan

Fiskvinnslan Svalþúfa ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað haustið 1995. Stofnendur og eigendur Svalþúfu eru Gylfi Magnússon, Magnús Gylfason og Arnar Gylfason. Sérstaða og tilgangur félagsins er og hefur alltaf verið kaup og sala á fiski, þ.e. að framleiða gæðavöru til útflutnings, fullnýta svokallaðar aukaafurðir og byggja upp öflugt fiskvinnslufyrirtæki í Hafnarfirði.

Starfsfólk Svalþúfu þurrkar hausa á hjöllum í Hafnarfirði, vinnur vörur í fiskvinnslu við Hafnarfjarðarhöfn en einnig er boðið upp á alls kyns þjónustu við önnur fyrirtæki í sjávarútvegi og vinnslu. Haldið er fast í gamlar og góðar hefðir svo sem við að gella og seila og hengja á hjalla með sömu aðferðum og hafa verið notaðar síðastliðna öld.


Feðgarnir Gylfi Magnússon, Magnús Gylfason og Arnar Gylfason við skreiðarhjallana við Krísuvíkurveg. Mynd/Svalþúfa

Eigendur Svalþúfu eru ættaðir úr Ólafsvík og nafnið kemur frá Snæfellsnesi. Svalþúfu sjálfa má sjá hægra megin á myndinni en hún er móbergsstapi sunnan undir Snæfellsjökli. Frábær útsýnisstaður sem dregur að fjölda ferðamanna ár hvert. Í baksýn má sjá hina tignarlegu Lóndranga. Þarna eru ein gjöfulustu fiskimið við vestanvert landið.

Eldun

Það er hægt að elda kinnar á fjölbreytta vegu. Þær eru sælgæti steiktar á pönnu eða djúpsteiktar en líka mjög hentugar í fiskisúpur. Kjötið er með hæfilegum stífleika sem er kostur í matseldinni. Rúnar Marvinsson veitingamaður gerði kinnarnar frægar á veitingastað sínum Við Tjörnina á árum áður. Þessi uppskrift er ættuð frá honum:

Steinbítskinnar Rúnars Marvinssonar – fyrir fjóra – 8 til 12 kinnar

Eggjahræra; 4 egg, 1 dl rjómi, picanta eða salt, estragon.
Þeytt saman og kinnunum velt upp úr. Síðan er kinnunum velt upp úr rúgmjöli með smávegis heilhveiti í. Svo aftur upp úr eggjahrærunni. Kinnarnar steiktar í smjöri og lagðar til hliðar.

Sósa. Smjörklípa sett á pönnuna og sósan löguð á henni. 2 hvítlauksrif, söxuð sett beint á pönnuna. Estragon. Picanta 1/2 – 1 tsk. 1 peli af rjóma. 1 glas af hvítvíni. Látið sjóða niður.

Borið fram með soðnum kartöflum, gulrótum blómkáli og spergilkáli. Kalt hvítvín með er punkturinn yfir i-ið.

Innihaldslýsing

Steinbítskinnar, 1 kg
Íshúð 3-5%.
Frystivara.

Geymist við -18°C.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 300 kJ/71 kkal
Fita 0,8 g
-þar af mettuð 0 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Prótein 15,9 g
Salt 0 g

Aðrar upplýsingar

Kinnarnar frá Svaþúfu eru frystivara.

Innihald: Steinbítskinnar
Upprunaland: Ísland
Veiddur á Íslandsmiðum, Va FA027
Framleiðandi:Svalþúfa ehf. Óseyrarbraut 9, 220 Hafnarfjörður.
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is

Þér gæti einnig líkað við…