Skip to content Skip to footer

Þeytt nautatólg frá Hvammi – hrein

2.490 kr.

Matland, í samstarfi við HD-veitingar og Davíð Clausen Pétursson, bóndason frá Hvammi í Ölfusi, býður upp á þeytta nautatólg í krukkum.

Kostir nautatólgarinnar (e. beef tallow) er að hún þolir mjög háan hita og er því kjörin til steikingar. Tólgin er nær lyktarlaus. Nautatólg er rík af A-, D-, E- og K-vítamínum sem eru góð fyrir m.a. sjón, bein og ónæmiskerfið.

Tólgin er kælivara en það er upplagt að hafa hana nálægt eldavélinni og nota í stað fljótandi olíu eða smjörs þegar það á við.

1 krukka, nettóþyngd 400 g. Verð kr. 2.490 kr.

Matland sendir þér vörurnar gegn vægu gjaldi eða þú sækir á afhendingarstað Matlands á Hrísateig 47 í Reykjavík. Afgreiðum samdægurs ef pantað er fyrir hádegi, annars daginn eftir. Matland sendir sms þegar varan er tilbúin til afhendingar. Sendingar út fyrir höfuðborgarsvæðið fara með Samskipum á afgreiðslur um allt land.

4 á lager

Lýsing

Hrein tólg. Búið er að þeyta hana svo auðveldara að eiga við án þess að hita hana upp.

  • Gefur gott bragð.
  • Hentar í húðvörur
  • Þolir háan hita

Ferskvara.

Næringargildi í 100 g:
Orka: 3700 kJ/900 kcal
Fita: 100 g, þ.a mettuð fita 57 g
Kolvetni: 0 g
Prótein: 0 g
Salt: 0 g

Upplýsingar

Tólgin er unnin í viðurkenndu eldhúsi og fengin af nautgripum frá Hvammi í Ölfusi. Búið er að þeyta tólgina svo auðveldara að eiga við hana.

Innihald: 100% hrein nautatólg
Nettóvigt: 400 g
Geymist í kæli, 0 – 4°C. Best fyrir: Sjá botn á krukku

Upprunaland: Ísland
Slátrað og unnið á Íslandi.
Alið í Hvammi í Ölfusi
Framleiðandi: Matfélagið og HD-veitingar
Sláturhús: SS á Selfossi
Söluaðili: Matfélagið ehf. – Matland.is, Hrísateig 47, 105 Reykjavík.

Bændurnir

Í Hvammi búa bændurnir Pétur Benedikt Guðmundsson og Charlotte Clausen. Sonur þeirra Davíð Clausen hefur starfað í kjötiðnaði og sér um nautaeldið. Davíð er í landsliðshópi kjötiðnaðarmanna.

Bændurnir í Hvammi; Davíð, Pétur og Charlotte.

Davíð, sem vinnur sem kjötiðnaðarmaður hjá Ferskum kjötvörum í aðalstarfi, hefur þróað nautaeldið í Hvammi eftir veru sína á Hvanneyri.


Ungnautin í Hvammi í Ölfusi fá gott atlæti og eru í rúmgóðum stíum. Myndir / TB

 

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Þeytt nautatólg frá Hvammi – hrein”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Þér gæti einnig líkað við…