Skip to content Skip to footer

Ýsa í raspi – lausfrystir bitar 2 pk x 800 g

4.470 kr.

Ýsubitar í raspi frá fyrirtækinu Hnýfli í Eyjafirði.

2 x 800 g pakkar, samtals 1,6 kg af ýsu í raspi. Frystivara. 

Verð fyrir 1,6 kg er 4.470 kr. Verð: 2.794 kr./kg.

Fiskurinn er afhentur hjá Matlandi á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS þegar varan er tilbúin til afgreiðslu. Keyrum út á höfuðborgarsvæðinu og sendum með Samskip um allt land.

15 á lager

Flokkur: Merkimiðar: , Vörunúmer:57026

Lýsing

Hnýfill á Akureyri

Fiskverkunin Hnýfill var stofnuð i desember 1995 og hafði aðsetur á Skipatanga á Akureyri. Árið 1999 festu eigendur Hnýfils kaup á 480 m2 húsi að Óseyri og fluttu inn í húsnæðið um áramótin 2000. Húsnæðið var þá 15 ára gamalt, mjög vandað og snyrtilegt hús til allrar matvælavinnslu. Markmið félagsins er reyking hverskyns sjávarafurða og sala þeirra, einnig saltaðra, þurrkaða og nýrra fiskafurða á nærmarkaði.

Vörurnar sem Hnýfill selur og framleiðir á smásölu- og mötuneytamarkað í reykvörulínunni eru: kofareyktur silungur, lax, og rauðmagi, hrefnukjöt en einnig reykt ýsa og þorskur. Einnig framleiðir fyrirtækið talsvert af gröfnum laxi.

Innihaldslýsing

Ýsa (83%), raspur (brauðraspur (HVEITI, salt, krydd, ger). Grænmetiskraftur (salt, maltódextrín, sterkja, ger, grænmeti (laukur, gulrætur, blaðlaukur), bragðefni, gulrótasafi, krydd)), deig (vatn, HVEITI, maltað HVEITI, umbreytt maíssterkja, mjölmeðhöndlunarefni (E300).

Neytist innan 4 daga frá því að umbúðir eru opnaðar.

Frystivara.

Gæti innihaldið smábein. Geymist við -18°C.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 461 kJ/110 kkal
Fita 0,7 g
-þar af mettuð 0,1 g
Kolvetni 9,1 g
-þar af sykurtegundir 0,6 g
Trefjar 0,5 g
Prótein 16 g
Salt 0,7 g

Frekari upplýsingar

Reyktur lax

,

Þér gæti einnig líkað við…