Lýsing
Framleiðandinn
Vörurnar frá Fangst eru þekktar í Skandinavíu fyrir gæði. Rætur fyrirtækisins liggja í norrænni náttúru og matarmenningu. Markmið Fangst er að bjóða upp á bragðgóðar máltíðir og snarl úr því sem náttúran hefur upp á að bjóða, hvort heldur af landi, sjó eða úr norðlægum vötnum.
Framleiðandj Fangst segir mikilvægt að líta sér nær og taka örfá skref til baka. “Borðum meira af einföldum mat sem náttúran býður upp á og minna af unnum matvælum. Fangst er afurð okkar, unnin úr fiski og skelfiski af norðurslóðum, varðveitt í dósum.”
Varan
Regnbogasilungur – reyktur urriði, kryddaður með einiberjum og sítrónutimían
Tegund (latneskt): Oncorhynchus mykiss
Svæði: Danmörk
Nettóþyngd: 110 g
Innihald:
Reyktur silungur (72,5%), kaldpressuð repjuolía* (27%), salt, sítrónutimjan* (0,3%), einiber* (0,2%).
*Lífrænt
Næringargildi pr. 100 g:
Orka: 1426 kJ/341 kcal
Fita: 31,1 g
– þar af mettaðar fitusýrur: 2,6 g
Kolvetni: 0 g
– þar af sykur: 0 g
Prótein: 16,1 g
Salt: 1,8 g
Geymsla:
Kælt eða við stofuhita. Í kæli eftir opnun.
Tillaga að framreiðslu:
Berið fram með góðu brauði og kreistið sítrónu yfir.
Upprunaland: Danmörk
Pökkun: Skov í Danmörku
Innflutningur og dreifing: Cuisine ehf.
Söluaðili: Matland





