Stór úthafsrækja að vestan – 1 kg (2 x 500 g)

3.460 kr.

Matland býður upp á stóra úthafsrækju sem veidd er á Íslandsmiðum. Frábært hráefni í hina ýmsu rækjurétti. Úthafsrækjan er aðeins stærri en innfjarðarrækjan sem Matland hefur selt um nokkurt skeið.

2 x 500 g pakkningar af einfrystri úthafsrækju. Frystivara.

Verð: 3.460 kr/kg

Vörur eru keyrðar út til viðskiptavina gegn vægu gjaldi eða afhentar hjá Matlandi á Hrísateig 47 daginn eftir kaup eða samdægurs ef pantað er fyrir hádegi. Við sendum SMS þegar vörurnar eru tilbúnar til afgreiðslu. Sendum með Samskip um allt land.

24 á lager

Lýsing

Íslendingar kölluðu rækjuna „kampalampa“

Rækjuverksmiðjan Kampi á Ísafirði var stofnuð árið 2007 en áður höfðu verið rækjuvinnslur í húsnæðinu í áratugi. Rækjuvinnsla er tæknilega mjög krefjandi og hefur Kampi leitast við að innleiða nýjustu tækni í vinnsluferlinu jafnóðum. Lokaafurðin soðin rækja er tilbúin til neyslu.

Upphaf rækjuveiða við Ísland má rekja til ársins 1924 þegar fyrst var gert út á rækjunót frá Ísafirði. Árin á eftir þróuðust veiðarnar yfir í alvöru atvinnugrein sem átti eftir að eiga stóran þátt í atvinnuuppbyggingu víða um land.

Hin svokallaða innfjarðarrækja er rækja sem veidd er af dagróðrabátum á tímabilinu október til apríl/maí, soðin og pilluð daginn eftir hjá fyrirtækinu Kampa ehf. á Ísafirði. Úthafsrækjan er veitt á djúpsævi og er nokkuð stærri en innfjarðarrækjan.

Gæði rækjunnar frá Kampa ehf. eru mjög góð og ferskleiki annálaður.

Upphaf rækjuveiða við Ísland má rekja til tveggja Norðmanna, Ole G. Syre og Símon Olsen en þeir voru búsettir á Ísafirði. Þeir þekktu hvernig rækjuveiðar voru stundaðar á heimaslóðum sínum og gerðu fyrstu tilraun til rækjuveiða við Ísland árið 1924. Þeir keyptu vélbátinn Hrönn í Noregi og með bátnum kom rækjunót. Rækjuveiðar þeirra gengu vel en féllu niður vegna þess að enginn markaður var fyrir rækjuna. Íslendingar kölluðu rækju á þessum tíma kampalampa. Þær hafa síðan gengið upp og niður æ síðan – útgerðarfyrirtæki komið og farið eins og gengur.

Innihaldslýsing

Rækja, soðin. Úthafsrækja. Frystivara.

Geymist við -18°C.

Næringargildi í 100 g.:

Orka 307 kJ/72 kkal
Fita 1 g
-þar af mettuð 0,22 g
Kolvetni 0 g
-þar af sykurtegundir 0 g
Trefjar 0 g
Prótein 15,9 g
Salt 1,5 g

Innihald: Rækja (skelfiskur), vatn, salt.
Stærð: 150/200

Framleiðandi: Kampi á Ísafirði

Þér gæti einnig líkað við…

Fréttabréf

Skráðu þig til að fá fréttabréf Matlands í tölvupósti.

Please wait...

Takk fyrir skráninguna!

Matland.is © 2026. Matfélagið ehf. Hrísateig 47, 105 Reykjavík. Allur réttur áskilinn –  Kaupskilmálar

Visa - Mastercard