Deila þessari síðu
Búið er að semja við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armón um smíði nýs hafrannsóknaskips fyrir íslensku þjóðina. Nýja skipið mun koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar sem hefur þjónað við hafrannsóknir í 52 ár. Við hönnun skipsins hefur mikil áhersla verið lögð á að það verði eins umhverfisvænt og sparneytið og unnt er.
Siglir inn í íslenska landhelgi haustið 2024
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra undirritaðu samning við forvígismenn spænsku skipasmíðastöðvarinnar 1. apríl sl. um smíðina sem á að vera lokið eftir 30 mánuði. Áætlað er að skipið komi til landsins haustið 2024.
Vilja að matvælaframleiðsla styðji í auknum mæli við loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar
Í ávarpi sem Svandís flutti við athöfnina sagði hún rannsóknir á náttúrunni vera grundvöll að þekkingu og ákvörðunum, bæði til nýtingar auðlinda og verndunar.
„Matvælaráðuneytið leggur áherslu á að matvælaframleiðsla styðji í enn meira mæli en áður við loftslagsmarkmið ríkisstjórnarinnar og mikilvægi sjálfbærrar nýtingar á auðlindum lands og hafs. Hið nýja skip og rannsóknamöguleikar þess mun því vera öflugt tæki sem mun styðja við þessi markmið matvælaráðuneytisins.“
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra
Rannsóknir styðja við aukna verðmætasköpun
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti einnig ávarp þar sem hann talaði meðal annars um mikilvægi þess að fjárfesta í rannsóknum til að styðja við verðmætasköpun sjávarútvegsins.
„Það er mjög ánægjulegt að vera á þeim stað núna að við getum að fullu staðið við þau áform og þá miklu fjárfestingu til framtíðar sem nýsmíði á skipi óhjákvæmilega er. Nú, við stefnumörkun fjármála til næstu fjögurra ára, sjáum við fram á betri efnahagshorfur en spár gerðu ráð fyrir og áframhaldandi getu til fjárfestinga í mikilvægum innviðum. Fjárfesting í aukinni og betri rannsóknargetu til að styðja við eina af okkar undirstöðuatvinnugreinum er stórt skref og ástæða til að óska Hafrannsóknarstofnun og þjóðinni allri til hamingju með þennan merka áfanga,“ er haft eftir Bjarna í fréttatilkynningu frá Stjórnarráðinu.